Bókatíðindi - 01.12.2022, Síða 69
Sagnfræði,
trúarbrögð og
ættvísi
IB
Bjóluætt
Ritstjóri: Sigurður Hermundarson
Bjóluætt er rakin til hjónanna Filippusar
Þorsteinssonar (1799-1855), bónda í Bjólu í Ásahreppi
í Rangárvallasýslu og eiginkvenna hans, Guðbjargar
Jónsdóttur (1805-1838) og Sigríðar Jónsdóttur
(1814-1893). Frá þeim er kominn gríðarstór ættbogi
sem teygir sig út um allan heim, en sameinast þó í
þessu mikla riti, sem prýtt er fjölda mynda.
330 bls.
Bókaútgáfan Hólar
SVK
Bustarfell: saga jarðar og ættar
Finnur Ágúst Ingimundarson
Í bók þessari birtast í fyrsta sinn á prenti tvö
handrit sem varðveitt eru á Bustarfelli og segja
sögu þessa merka höfuðbóls og ættarinnar sem
þar hefur búið frá 1532. Handrit Einars Jónssonar
prests á Hofi fjallar um sögu jarðarinnar og ættir
Árna Brandssonar og Úlfheiðar Þorsteinsdóttur
sem hófu búskap á jörðinni það ár, afkomendur
þeirra og ábúendur til aldamótanna 1900.
254 bls.
Minjasafnið á Bustarfelli
SVK
Smárit Sögufélags Kópavogs og Héraðsskjalasafns
Kópavogs VI
Högna Sigurðardóttir. Sundlaugin sem ekki varð
Katrín Heiðar
Ritstjóri: Hrafn Sveinbjarnarson
Umsj: Símon Hjalti Sverrisson
Högna Sigurðardóttir arkitekt gerði tvær tillögur að
Sundlaug Kópavogs. Upphafleg tillaga hennar frá
1962 var aðeins byggð að hluta. Hún er sett í listrænt
samhengi við stefnur og strauma í byggingarlist. Sýnt
er fram á að hvor tillaga um sig hafi verið einstæð og
þær ólíkar öðru sem gert hafði verið hér á landi.
63 bls.
Héraðsskjalasafn Kópavogs
SVK
Iceland Travel Guide: Women's History
Be inspired by the women of Iceland
Fjalldís Ghim
Þessi einstaka ferðabók innblásin af kvennasögu
kynnir áhugaverðar sögur kvenna frá víkingaöld
til nútímans. Gagnleg ferðaráð fyrir för þína
um Ísland ásamt fallegum gömlum myndum
tengdum stöðum og konum í bókinni.
Skipuleggðu lærdómsríka ferð um Ísland fulla af
áfangastöðum tengdum yndislegum konum.
Bókin er á ensku
209 bls.
Esja
IB
Þingvellir í íslenskri myndlist
Ritstjórar: Aðalsteinn Ingólfsson og Sverrir
Kristinsson
Þingvellir eru hjartastaður þjóðarinnar. Þar eru
fegurðin og sagan við hvert fótmál. Í þessari glæsilegu
bók er ítarlegt yfirlit um íslenska myndlist tengda
Þingvöllum og þróun hennar í tímans rás. Við gerð
hennar hefur verið unnið mikið starf við söfnun,
skráningu og ljósmyndun listaverka en myndir af
269 verkum eftir 104 listamenn eru í bókinni.
376 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
IB
Þórir Baldvins son arkitekt
Ólafur J. Engilbertsson, Árni Daníel Júlíusson,
Jóhannes Þórðarson, Ólafur Mathiesen og Pétur H.
Ármannsson
Ritstjóri: Ólafur J. Engilbertsson
Þórir Baldvinsson (1901-1986) arkitekt var í
senn framúrstefnumaður í anda funksjónalisma
og baráttu maður fyrir bættum húsakosti til
sveita. Hann veitti Teiknistofu landbúnaðarins
forstöðu á árunum 1938-1969. Í þessari bók er
yfirlit verka Þóris ásamt greinum um líf hans
og starf. Úlfur Kolka sá um hönnun.
164 bls.
Sögumiðlun
IB
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins
Þroskasaga Haís Íbn Jaqzan
Ibn Tufaíl
Saga Haís er frumleg tilraun til að svara spurningunni
um hvernig mannskepnan sé í eðli sínu. Hún gerir ráð
fyrir að til sé hinn náttúrlegi maður, með öllu ósnortinn
af samfélaginu. Ritið sem verður til í Andalúsíu
á tólftu öld sameinar aristótelísk-nýplatónskri
heimspeki íslamskri dulhyggju, súfisma.
Hið íslenska bókmenntafélag
IB
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins
Öld gensins
Evelyn Fox Keller
Skilningur okkar á erfðum eru nátengdur
hugmyndinni um genið. Alla tuttugustu öld
var genið í miðpunkti erfðarannsókna og staða
þess virtist enn styrkjast þegar lýst var byggingu
DNA kjarnsýrusameindarinnar. En því fer þó
fjarri að staða gensins sé trygg eða augljós.
Hið íslenska bókmenntafélag
RAF
Örverufræði
Lone Als Egebo
Þýð: Eva Benediktsdóttir
Örverufræði er ný þýdd og staðfærð kennslubók
sem fjallar um helstu hliðar örverufræðinnar.
Bókin er ætluð til kennslu í líffræði og líftækni í
framhaldsskólum. Hún nær yfir breitt svið, þannig
að hana má einnig nota við aðra kennslu.
IÐNÚ útgáfa
Sagnfræði, trúarbrögð og ættvísi
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 69GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Sagnfræði, trúarbrögð og ættvísi