Bókatíðindi - 01.12.2022, Qupperneq 71
IB RAF HLB
Bréfin hennar mömmu
Ólafur Ragnar Grímsson
Á fyrri hluta síðustu aldar voru berklar ein helsta
dánarorsök Íslendinga. Svanhildur Hjartar, móðir
Ólafs Ragnars, var ein þeirra sem veiktust. Ólafur
Ragnar opnar hér bréfasafn fjölskyldunnar þar sem
birtist á opinskáan og nístandi hátt persónuleg
saga sem lætur engan ósnortinn, um leið og ljósi
er varpað á erfiðan þátt í þjóðarsögunni.
284 bls.
Forlagið - Mál og menning
KIL
Dostojevskí og ástin
Ævisaga með hans eigin orðum
Alex Christofi
Þýð: Áslaug Agnarsdóttir
Í þessari nýstárlegu ævisögu hefur Alex Christofi ofið
í samhengi vandlega valin brot úr verkum rússneska
skáldjöfursins Fjodors Dostojevskí. Úr verður heillandi
mynd af mögnuðu skáldskaparlífi sem gat af sér
nokkrar frægustu skáldsögur heimsbókmenntanna,
Glæp og refsingu, Karamazovbræðurna og Fávitann.
416 bls.
Ugla
KIL
Arnar saga Björnssonar
Ekki standa á öðrum fæti allt lífið
Kristín Erna Arnardóttir
Bókin er ævisaga Arnar Björnssonar fyrrum
útibústjóra Íslandsbanka á Húsavík.
213 bls.
Lilla ehf
SVK
Elspa
Saga konu
Guðrún Frímannsdóttir
Hér rekur Elspa Sigríður Salberg Olsen harmsögulega
ævi sína og upprisu til nýs lífs. Elspa, sem fæddist
á Akureyri skömmu fyrir miðja síðustu öld og
fékk bágborið veganesti út í lífið. Hún ólst upp við
sára fátækt, alkóhólisma, ofbeldi og kynferðislega
misnotkun og fór að mestu á mis við formlega
menntun. Bók sem vakið hefur mikla athygli.
400 bls.
Sögur útgáfa
Ævisögur og
endurminningar
KIL
Álfadalur
Sönn saga um kynferðisofbeldi, þöggun og
afleiðingar þess
Guðrún Jónína Magnúsdóttir
Höfundur rekur hér sögu móður sinnar, Sigurbjargar
Oddsdóttur frá Álfadal á Ingjaldssandi. Þetta er
saga harðrar lífsbaráttu, hroðalegrar grimmdar
og lamandi meðvirkni svo lesandann rekur
í rogastans. En það er líka saga af ótrúlegri
þrautseigju og viljastyrk konu sem tekst að lifa
innihaldsríku lífi þrátt fyrir hörmuleg áföll.
160 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
IB
Ástin á Laxá
Hermóður í Árnesi og átökin miklu
Hildur Hermóðsdóttir
Sagan af því þegar Þingeyingar tóku til sinna ráða
til verndar náttúrunni og sprengdu stíflu í Laxá með
dýnamíti í eigu virkjunarinnar. Sögð er saga Hermóðs í
Árnesi og hans þætti í baráttunni miklu fyrir verndun
Laxár og Mývatns. Bókin fangar ástina á náttúrunni
og bregður upp myndum af fólkinu sem verndaði
hana með samheldni og eldmóð að vopni.
288 bls.
Salka
IB
Á vori lífsins
Minningar
Guðfinna Ragnarsdóttir
Guðfinna Ragnarsdóttir fæddist í hinu fræga Tobbukoti
við Skólavörðustíg og ól bernskuár sín þar en fluttist
fjögurra ára gömul í Laugarneshverfið sem þá var í
örum vexti. Hún lýsir með lifandi hætti æskuárum
sínum á Hofteigi, fjörmiklum ungdómsárum í
menntaskóla og bregður upp eftirminnilegum myndum
af mannlífi á Íslandi upp úr miðri síðustu öld.
360 bls.
Ugla
IB
Bakkadrottningin Eugenía Nielsen
Daglegt líf og menning á Eyrarbakka
Kristín Bragadóttir
Hér segir frá kaupmannskonunni Eugeníu Nielsen
(1850–1916) sem gerði Húsið sögufræga á Eyrarbakka
að miðstöð félags- og menningarlífs á Suðurlandi
á síðari hluta nítjándu aldar og fyrstu árum þeirrar
tuttugustu. Lýst er fjölbreyttu mannlífi alþýðufólks
í plássinu, heimsóknum listafólks og margvíslegum
framfara- og líknarmálum sem Eugenía stóð fyrir.
404 bls.
Ugla
Þar sem týpurnar
versla er þér óhætt!
www.boksala.is
Ævi sög ur og end ur minn ing ar
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 71GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Ævisögur og endurminningar