Bókatíðindi - 01.12.2022, Page 75
Íþróttir og útivist
SVK
Sérkort 1:200 000
Akureyri - Mývatn - Húsavík - Ásbyrgi
Vandað og handhægt kort yfir vinsælt landsvæði á
Íslandi. Á kortinu eru einnig ljósmyndir og upplýsingar
um helstu ferðamannastaði á svæðinu. Kortið er unnið
eftir nýjustu stafrænum gögnum og þar eru helstu
upplýsingar um vegi, vegalengdir og ferðaþjónustu.
Mælikvarði: 1:200 000. Blaðstærð: 42 x 94,5 cm.
Tungumál: Íslenska, enska, þýska, franska.
IÐNÚ útgáfa
IB
Félag unga fólksins
Saga Ungmennafélagsins Sindra 1934-1966
Arnþór Gunnarsson
Stofnun Sindra var mikil lyftistöng fyrir félagslíf
ungs fólks á Höfn í Hornafirði. Saga félagsins
ber vott um drifkraft og áræðni, það efndi til
skemmtiferða, hélt sund- og íþróttanámskeið og
starfrækti unglingaskóla í tvo vetur. Einnig reistu
félagsmenn fyrsta samkomuhúsið á Höfn.
160 bls.
Bókaútgáfan Hólar
SVK
Fær í flestan sjó
Synt í íslenskri náttúru
Egill Eðvarðsson og Kristín Jórunn Hjartardóttir
Kristín hafði stundað sjósund í nokkur ár þegar
hún ákvað, í tilefni af sextugsafmæli sínu, að synda
á sextíu nýjum stöðum á landinu. Afraksturinn
af ferðalögum hennar og eiginmanns hennar er
þessi dásamlega fallega ferðabók sem fléttar saman
stemningu, fróðleik og hagnýtar leiðbeiningar
um heila 83 sundstaði um allt land.
328 bls.
Forlagið - Vaka-Helgafell
SVK
Gönguleiðir á Reykjanesi
Jónas Guðmundsson
Lifandi leiðarlýsingar, kort og GPS-hnit tæplega 30
áfangastaða á Reykjanesskaga. Gönguleiðirnar eru
innblásnar af þeim miklu jarðumbrotum sem hafa
einkennt svæðið alla tíð. Margar leiðirnar henta fyrir
fjallahjól, aðrar fyrir utanvegahlaup og enn aðrar til að
kynna yngstu kynslóðina fyrir töfrum fjallaferða.
200 bls.
Salka
IB
Haaland
– sá hættulegasti
Illugi Jökulsson
Erling Braut Haaland! Norska undrið sem þaut sem
hvirfilbylur yfir knattspyrnuheiminn. Hann hættir ekki
að skora og enginn kann að verjast honum. Mótherjar
kalla hann skepnu, ómennskan. Er hann sá hættulegasti
í sögunni - og bara rétt að byrja? Kynnumst sögu
undradrengsins, æskunni og hröðum uppgangi í
hressandi frásögn skreyttri frábærum myndum.
Sögur útgáfa
SVK
Hálendishandbókin
Ekið um óbyggðir Íslands
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Ómissandi ferðafélagi allra þeirra sem ferðast
um hálendið kemur nú út í nýjum búningi.
Bókin geymir sem fyrr leiðsögn um flestar helstu
hálendisleiðir, auk vegvísa um ýmsar fáfarnar
slóðir í eyði- og óbyggðum landsins. Bent er
á áhugaverða staði, urmul náttúruperla utan
alfaraleiða og ævintýralegar gönguleiðir.
352 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Hetjurnar á HM
Illugi Jökulsson
Heimsmeistaramótið í fótbolta er stærsti
íþróttaviðburður veraldar. Það er sama hvað hver
segir, engin íþrótt jafnast á við fótbolta að dramatík,
vinsældum og spennu. Og engin keppni jafnast
á við HM í fótbolta, sem haldin er á fjögurra ára
fresti. HM 2022 er beðið með óþreyju um allan
heim. Lestu allt um hetjurnar á HM!
168 bls.
Sögur útgáfa
Íþróttir og útivist
Bækurnar heim!
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 75GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Íþróttir og útivist