Bókatíðindi - 01.12.2022, Qupperneq 77
Sálfræði, sjálfshjálp
og andleg leiðsögn
SVK
Af hverju hefur enginn sagt mér þetta fyrr
Dr. Julie Smith
Þýð: Valgerður Ólafsdóttir
Með því að auka skilning á því hvernig hugurinn
starfar og hvernig takast má á við tilfinningar á
heilbrigðan hátt byggjum við upp seiglu, vöxum og
döfnum. Bókin kynnir til sögunnar verkfæri sem
gagnast öllum í daglegu lífi – til að komast yfir hjalla
eða til að blómstra. Sérlega læsileg og uppbyggileg
bók eftir TikTok-stjörnuna dr. Julie Smith.
352 bls.
Benedikt bókaútgáfa
Ástin og svörin
Guðfinna Inga Sverrisdóttir
Myndh: Guðfinna Inga Sverrisdóttir
Í þessari myndskreyttu bók eru 200 staðhæfingar
sem eiga að svara spurningum um ástarmálin:
Hvenær hitti ég sálufélaga minn? Er hann eða
hún kannski handan við hornið? Af hverju geri ég
sömu mistökin aftur og aftur? Hugleiddu hvað þú
vilt vita um ástina og veldu tölu frá 1-200 og sjáðu
hvort staðhæfingin eigi við spurningu þína.
91 bls.
Guðfinna Inga Sverrisdóttir
KIL RAF
Hver er ég? Áhugamál
Sigríður Birna Bragadóttir
Myndir: Anna Jóna Sigurjónsdóttir
Myndaritstj: Hafdís Anna Bragadóttir
Ritstjóri: Steinar Bragi Sigurjónsson
Óli er 10 ára strákur sem langar að læra um áhugamál.
Hann lærir um 6 hópa í ýmsum litum með allskonar
skemmtilegum áhugamálum og störfum.
37 bls.
Spurning
IB
Leiðarvísir nornarinnar að sjálfsrækt
Heilandi galdrar og græðandi fjölkynngi fyrir betra líf
Theodosia Corinth
Þýð: Katrín Harðardóttir
Hér er að finna fleiri en 90 seiði og galdraathafnir sem
hjálpa þér að tengjast huga þínum, líkama og innra
sjálfi. Lestu um hreinsandi athafnir, jurtir og kristalla,
íhugun og kraftbirtingar, stjörnuspeki, tunglganginn,
tarot og seiði og galdra sem hjálpa þér og styrkja.
168 bls.
Salka
SVK
Leið hjartans
Guðrún Bergmann
Við stöndum á merkilegum tímamótum, því
mannkynið er að taka framþróun og uppfærast.
Jörðin er líka að fara í gegnum sína uppfærslu. Í
Leið hjartans koma fram nánari skýringar á þeim
umbreytingum sem sólkerfi okkar er að fara í gegnum
og þeim áhrifum sem það er að hafa á jarðarbúa, sem
þurfa að læra að virkja kærleiksorkuna í sér.
120 bls.
G. Bergmann ehf.
IB
Sögurnar á bak við jógastöðurnar
Indverskar goðsagnir sem skópu 50 jógastöður
Dr. Raj Balkaran
Þýð: Hafsteinn Thorarensen
Uppgötvaðu sögurnar og viskuna sem liggja að baki
uppáhalds jógastöðunum þínum í þessari töfrandi
bók um indverska goðafræði. Sögumaðurinn,
fræðimaðurinn og kennarinn dr. Raj Balkaran
leiðir lesandann í ógleymanlegt ferðalag um
goðsagnaheima Indlands á síðum bókarinnar og
segir sögurnar á bakvið 50 lykilstöður í jóga.
224 bls.
Salka
IB
Tarot-bókin
Handbók og falleg tarot-spil
Claire Goodchild
Þýð: Hafsteinn Thorarensen
Falleg askja með handbók um tarot og spilum.
Bókin hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum
og kennir lesandanum ýmsar lagnir spilanna og
hvernig lesa á úr þeim. Þar að auki eru myndmál
og merking spilanna útskýrð á aðgengilegan
hátt. Tarot-bókin er ómissandi og aðgengilegt
verkfæri fyrir áhugafólk um dulspeki.
80 bls.
Salka
Sálfræði, sjálfshjálp og andleg leiðsögn
Verslaðu heima
KIL
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 2 77GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Sálfræði, sjálfshjálp og andleg leiðsögn