Úrval - 01.07.1966, Qupperneq 16
14
ÚRVAL
og viðstöðulaus bruni. Ef bensínið
orsakar sprengingu fara að heyrast
málmkennd högg í vélinni og er það
merki um að hætta sé á ferðum.
Þessi högg heyrast helzt, þegar vél-
in fer að ganga hraðar eða erfiðar
upp bratta. Þetta hljóð varar menn
við því, að ekki sé allt með felldu,
því að sprengingarnar geta eyðilagt
dæluna eða ventlana.
Okteinmagnið (Oktein er parafin
tegund, og samanstendur af vatns-
og kolefnasamböndum) —■ er það
sem mest áhrif hefur á sprengiþol
bensínsins. Þetta magn eða fjöldi
okteina er mælt frá 0 að 100 og er
núll markið þá miðað við aðra para-
fíntegund, sem einnig er í bensín-
inu, og kallast hepstein, og er
sprengiþol þess lítið, en svo er
blandað saman við þetta iso-okteini,
sem hefur geysimikið sprengiþol.
Bensín blanda sem hefur iso-oktein
og heptein í hlutföllunum 90 móti
10 er kölluð 90 okteina bensín.
Þrýstingurinn í sprengiholi bíl-
vélarinnar hefur stöðugt verið auk-
inn undanfarin ár, og það hefur or-
sakað að okteinmagn bensínsins
hefur aukizt úr 50 og í 100. Þrýst-
ingur í bílvélum hér áður fyrr, var
5:1, það er olían sem rann inn í
sprengiholið, var pressuð í einn
fimmta hluta af eðlilegu rúmtaki
sínu áður en kveikt var í henni. 1
dag er þessi samþjöppun 7,5:1 og
jafnvel 10:1.
Hér áður fyrr reyndist bensín á-
gætt fyrir þennan lága þrýsting eða
samþjöppun, en þegar samþjöppun-
in jókst, fór að bera á sprengingum
hættulegum vélinni.
Nú upphófust langvinnar tilraun-
ir og meir en 300 efni voru prófuð,
þar til loks að menn rákust á að
ein teskeiðarfylli af blýblöndu yki
okteinmagnið í bensíninu og þar
með sprengiþolið. Þessi uppgötv-
un hafði það í för með sér að menn
gátu haldið áfram að hækka þrýst-
inginn, án þess að hætta væri á
sprengingu.
Fyrst í stað eftir þessa uppgötv-
un, var haldið áfram að auka oktein-
magnið gífurleg'a, en nú er mjög
farið að draga úr því. Vélarnar eru
nú orðnar svo háþrýstnar, að ekki
er talin ástæða til að auka þrýst-
inginn meira. Það hefur enga hag-
nýta þýðingu, að nota bensín, sem
hefur meira okteinmagn en vélin
þarf á að halda. Ef vélin gengur
eðlilega með bensíni með litlu ok-
teinmagni, þá éykst hvorki hraði
né heldur minnkar bensínnotkun,
þó að notað sé bensín með of miklu
okteinmagni.
Auk þess, að okteinmagnið sé við
hæfi hverrar vélar, leggja menn á-
herzlu á að uppgufunareiginleiki
bensínsins sé við hæfi og er það
ekki síður mikilsvert en oktein-
magnið.
Uppgufun bensínsins drífur dæl-
una, og þess vegna er það, að eftir
því, sem uppgufunin er örari, eftir
því gengur vélin betur. í Bretlandi
þar sem veðurfar er óstöðugt eins og
víðar, hefur milljónum króna verið
eytt til þess, að tryggja öra uppguf-
un við hin ýmsu veðurskilyrði.
Nú er svo komið, flestar aðal-
tegundir bifreiðabensíns, hafa sama
uppgufunareiginleika og einnig ok-
teinmagn. Það er því sjaldan nefnd-