Úrval - 01.07.1966, Qupperneq 26
24
ÚRVAL
lög um að öll klaufdýr innflutt,
yrðu að fara í dýragarða, sem
stjórnin hefði lagt blessun sína yf-
ir. Afkvæmi þessara dýra voru aft-
ur á móti frjáls, eftir að þau voru
komin á legg.
Þannig eru um tólf Siberíugeit-
ur í Albuquerque-dýragarðinum,
og eru menn að vona að þær verði
frjósamar.
Nýju Mexicómenn ákváðu að
flytja inn enn tvær dýrategundir
frá Afríku, af ótta við, að þær væru
að deyja út. Þetta var hin stóra
kúdú antilópa og oryx antilóputeg-
undin.
Árið 1963 tókst litlum hópi veiði-
manna, að fanga 14 kúdú og oryx
antilópur. Kúdú er mjög þokkafullt
dýr á stærð við elgdýr. Suður-
Afríkubúar slátruðu einu sinni
milljónum af þessu dýri á þeim
röngu forsendum, að mergðin væri
svo mikil, að það gæti ekki komið
til mála að stofninn eyddist.
Sumar tegundirnar eyddust með
öllu í þessari herferð. Einhverjum
leifum þessarar dýrategundar var
síðar bjargað á friðuð svæði, en
nú skjóta veiðiþjófar þau.
Matmenn segja að kjötið af Kú-
dúdýrinu sé ljúffengara en af elg-
dýri og þetta dýr getur lifað af
landi, þar sem fæstum öðrum dýrum
væri líft. Þau geta verið vikum
saman án vatns. Fyrir eina tíð
runnu miklar hjarðir þessara dýra
um allt svæðið milli Höfðaborgar
og Sahara, en nú síðustu árin hafa
þau verið rekin og kvíuð af á hinni
hræðilegu Kalaharíeyðimörk. En
einnig þar eru þau drepin af
skógarmönnum, sem nota eitraðar
örvar í stað byssu.
Tæknin við að fanga þessi dýr er
skemmtileg. Kúdúdýr á flótta, getur
á stuttum spretti hlaupið af sér
hvaða hest sem er. Þau eru rekin á
opið svæði, þar sem veiðimaðurinn
eltir þau uppi á hraðskreiðum bíl,
og hefur hjá sér band með lykkju
4 öðrum endanum en hinn endinn
er festur í staur víðsfjarri. Veiði-
maðurinn í bílnum reynir að
smeygja lykkjunni yfir horn og
höfuð dýrsins.
Suður-afríski gimsteinahafurinn
(gembok) er stærstur af oryxantil-
ópunni. Hann varð fyrir valinu hjá
veiðimálayfirvöldum Nýju Mexico
af því, að hann þolir mikinn kulda
og einnig af því, að hann er orðinn
mjög sjaldgæfur. Þessi antilópu-
tegund getur vegið allt að 600 pund-
um.
Bæði karldýrið og kvendýrið hafa
löng og bein horn, sem eru mjög
eftirsótt af veiðimönnum. Oryxanti-
lópunni er öfugt farið við kúdú-
antilópuna, sem tekur fljótt til fót-
anna, en hún spýst til varnar og
er ill viðskiptis. Ef hjörð þessara
dýra kemur auga á hlébarða eða
hóp villtra hunda, þá hefur hún
í einum kór upp mikið skaðræðis-
öskur, og ryðst fram til hópa, kiðl-
ingar og kvendýr ekki síður en karl-
dýrin, og setur undir sig hausinn
með þessum voða hornum, og stang-
ar og treður niður allt, sem fyrir
henni verður.
Nokkrir Texaslandeigendur halda
mörg erlend dýr, og byrjuðu að
flytja inn strax eftir að Nýju-Mexi-
comenn höfðu sleppt barbary sauð-
unum. Einn þessara manna er Eddie