Úrval - 01.07.1966, Síða 32
30
ÚRVAL
hægt sé að nota þá stöðugt, og að
stanza þá til að leiðrétta skekkjur
kostar morð fjár. Sumir vélheilar
eru stilltir þannig, að þeir stoppa
á sama tíma dag hvern, og þá er
hægt að leiðrétta þá. En sé það
ekki gert þá, er það ekki framar
hægt þann daginn og ekki fyrr en
þeir stanza næst til leiðréttingar.
Skekkjan heldur þá áfram að marg-
faldast á alla vegu þennan tíma, án
þess að nokkur fái aðgert.
Mörg fyrirtæki nota einskonar
miðstöðvarvélheila og eigi að leið-
rétta þá, kostar það geysifyrirhöfn
og breytingar á merkjakerfi og því
hvernig óskapnaðurinn er „matað-
ur“, og á meðan margfaldast skekkj-
urnar eins og sýklar.
Slíkir miðstöðvarheilar geta ver-
ið leiðinda fyrirtæki, þó að ekki
sé um skekkjur að ræða. í stórri
verzlun einni í Kaliforníu er engin
leið fyrir afgreiðslumanninn að
segja viðskiptavininum hversu hár
reikningur hans sé. Ef hann vill
borga reikning sinn upp, verður
hann að bíða þar til vélheilanum
þóknast að senda frá sér næstu til-
kynningu.
Bankastjórar og forstjórar og
aðrir sem nota þessa vélheila mest,
viðurkenna ekki opinberlega að
vélheilum þeirra geti skjátlazt, en
í einkasamtölum viðurkenna þéir
fúslega, að það valdi þeim einmitt
miklum áhyggjum hin tíðu mis-
tök, sem virðast fara vaxandi. Einn
slíkra manna, forstjóri verzlunar
einnar, viðurkenndi í einkasamtali,
að vélheilinn væri að gera hann
vitlausan. Hann sagðist vita, að hin
tíðu mistök væru að draga úr verzl-
uninni, því að mistökin eru það
tíð, að þau hljóta að spyrjast út,
og við fáum slæmt orð á okkur.
Þetta hefur gengið svo langt, að á
síðasta ári varð það að lögum í
Kaliforníu, að það yrði að teljast
glæpur, að leiðrétta ekki umsvifa-
laust, ef rangur reikningur væri
sendur manni, og það gæti skaðað
lánstraust hans. Neytendasamtökin
í Kaliforníu hafa fengið hundruð
kvartana af ofannefndu tagi.
Nú er það svo, að þó að vélaheil-
inn vinni hratt, þá er eins og reikn-
ingsútskriftin sé engu hraðari en
áður var. Það er oft, að meðan
verið er að senda upplýsingar í
merkjakerfi frá einni borg til ann-
arrar um, til dæmis, hlaupareikn-
ing, sem hefur verið greiddur upp,
að þá færir vélheilinn á hann vexti
í millitíðinni, þannig að þegar kem-
ur að vaxtafærslutímanum, þá fær-
ir vélheilinn vextina af skuldinni,
sem var, vegna þess, að tékkinn er
ekki enn kominn í vélina.
Vinur minn einn, harðneitar orð-
ið að greiða nokurn hlut, hverju
nafni sem hann nefnist, nema með
peningum út í og hönd. Hann fékk
svo hressilegan skell, að lánstraust
hans bíður þess aldrei bætur vegna
mistaka vélheila. Hann hefur einn-
ig ónýtt öll sín lánaspjöld og neitar
jafnvel að greiða með ávísun.
Ef þróunin verður þessi, þá sjá
bandarískir viðskiptamenn sína
sæng út breidda. Slíkt gæti ekki haft
annað í för með sér en mikinn sam-
drátt í allri verzlun, nema með ró-
andi töflur.