Úrval - 01.07.1966, Page 53

Úrval - 01.07.1966, Page 53
NÝTT BYGGINGAREFNI 51 einnig verða notað til þess að fram- leiða enn betri vöruflutningabíla en nú þekkjast. Á sumum þjóðvegum eða hluta af þeim er um að ræða viss hleðslutakmörk, og gerir þetta þeim erfiðara fyrir, sem reka vöru- flutninga. Ef vöruflutningabílarnir væru smíðaðir úr boroni eða boron væri a.m.k. notað í þá ásamt öðrum efnum (en það er sterkara en stál, tvisvar sinnum ósveigjanlegra og þrsvar og hálfu sinni léttara), þá væri hægt að flytja meiri þunga með vöruflutningabílunum án þess að fara fram úr hleðslutakmarkinu. Olíuiðnaðurinn gæti ef til vill sparað allt að 40% kostnaðar við flutning á olíuborum, ef þeir yrðu smíðaðir úr boronblöndu og yrðu þannig léttaih án þess að missa nokkuð af styrkleika sínum. Lækka mætti um þriðjung kostnaðinn við að reisa slíka olíuborturna. Stytta mætti þann tíma um 15%, sem þarf til þess að draga 20.000 feta langan borarm upp úr borholu. setja í nýja bortönn og reka borarminn niður í holuna aftur, væru þessir borhlutar gerðir úr boronblöndu. Borpallar. Sumir hinna flytjanlegu borpalla, sem nú eru notaðir til olíuborunar á hafi úti, eru mjög stórir. Einn, sem er í notkun í Norðursjónum, er svipaður á hæð og 16 hæða bygg- ing. Væri þessi borpallur smíðaður úr boronblöndu í stað byggingastáls, mundi þyngd hans vera 82% minni. Erfitt er að segja til um, hversu langt sé þess að bíða, að farið verði að nota boronblöndu á þann hátt, sem nú hefur verið lýst. Slíkt bygg- ist að miklu leyti á því, hversu fljótt boron verður nægilega ódýrt til þess að hagkvæmt verði að nota það til iðnaðar. Nú sem stendur er borontrefja- efni mjög dýrt. Þannig er því far- ið með flest ný efni, á meðan þau eru enn á þróunarstiginu. Vissulega var því þannig farið með alúmín í fyrstu. Sú var tíð. að skartgripasal- ar höfðu til sölu leikhússjónauka í platínu- og alúmínumgerð á sama verði. Napóleon III lét bera fram mat á alúmíndiskum fyrir tignustu gesti sína, en ótignari gestir urðu að láta sér nægja gulldiska. Hráefni í hreinsiefni. Borax, málmurinn, sem boronið er unnið úr, er alls ekki dýrt. Það er nóg til af því á eyðimerkursvæð- um Kaliforínu, og þar hefur það verið unnið árum saman með iitlum tilkostnaði. Það er notað sem hrá- efni í sápur og alls konar hreinsi- efni. Áður fyrr voru það hinar frægu múldýralestir, sem fluttu það til byggða. Fyrri rannsóknir og tilraunir með ýmiss konar glertrefjaefni hafa orð- ið til þess að auðvelda mjög rann- sóknir og tilraunir með boron. Vísindamenn, sem vinna að rann- sóknum og tilraunum með ýmiss konar byggingarefni, vita ofur vel, að í gler- eða stálplötu eru tengsl- in milli frumeindanna geysilega sterk eða yfir milljón ensk pund í hverjum ferþumlungi „teoretiskt“ séð, þ.e. útreikningar sýna, að svo muni vera. En gler og stál hafa samt ekki þennan furðulega styrk- leika í raunverulegri notkun. Það
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.