Úrval - 01.07.1966, Síða 58
56
lyfjadeildar sjúkrahússins og borg-
ar venjulega þessi meðul einnig úr
eigin vasa.
Það ætlaði einnig að ganga erfið-
lega fyrir Mike að fá opnaðan banlca
í bænum. Bankastjórarnir í Bogatá
vildu ekki hlusta á hann. Hann
gerði sér þá hægt um hönd og bað
um viðtal við forsetan sjálfan, Al-
berto Lleras Camargo og var veitt
það.
Nokkrir stjórnmálamenn, sem
fundu, að þarna væri kannski mögu-
leiki á að vinna sér einhverja aukna
lýðhylli, mættu einnig til fundar-
ins.
Einn þeirra upphóf mikla ræðu
um þarfir fólksins við Amazonfljót-
ið og talaði af miklum fjálgleik.
Lleras þoldi við undir hinni skrúð-
mæltu ræðu í nokkrar mínútur, svo
þaggaði hann snarlega niður í ræðu-
manninum og spurði glottandi:
Mike, hvernig ganga viðskiptin með
hitabeltisfiskinn?
Mike svaraði af bragði: — Þau
ganga vel, en myndu ganga miklu
betur, ef þarna væri lánastofnun.
Þessum fundi lyktaði með því, að
forsetinn bað Mike að leggja fram
lista yfir allt það, sem hann teldi
að gera þyrfti í Leticia.
Það stóð ekki á Mike að gera
það, og á listanum var vegur í gegn-
um frumskóginn og alla leið til bæj-
arins, aflstöð, flotabryggja, iðnskóli,
og síðan aukin fjárveiting til rekst-
urs sjúkrahússins.
Nokkrum mánuðum seinna,
heimsótti sendinefnd stjórnarinnar
staðinn, og að því búnu samþykkti
stjórnin í Bogatá listann næstum
eins og hann lagði sig. Og banka-
ÚRVAL
stjórarnir áttuðu sig, og nú er bú-
ið að opna banka í Leticia.
Mike lét heldur ekki grasið gróa
undir fótum sér, þegar hann var
að fá menn til að taka upp flug-
samgöngur við staðinn. Enginn vildi
í fyrstunni sinna honum í Bogatá
fremur en fyrri daginn, en Mike
lét það ekki draga úr sér kjarkinn.
I þessu sambandi átti hann einnig
persónulegra hagsmuna að gæta,
þar sem var flutningur hans á dýr-
unum sem hann var að safna til
dýragarðs síns í Florida.
Yfirvöldin í Bogatá, sögðu, að
svona lítill bær eins og Leticia gæti
ekki með nokkru móti staðið und-
ir flugsamgöngum af nokkru tagi.
Það myndi ekki borga sig að fljúga
þangað einu sinni í mánuði, hvað
þá meira. Mike var nú ekki alveg
á þessu, og hann fékk stóra flutn-
ingaflugvél frá Florida til þess að
fara í reynsluflug til Leticia, og sú
flugferð lánaðist afburða vel. Þetta
varð til þes, að sá félagsskapur, sem
að flugvélina átti, ákvað að halda
uppi áætlunarferðum milli Florida
— Bogatá og Leticia og Mike gat
komið dýrum sínum fljótar og í
betra ástandi heim til Florida.
Þeir sem fengust við verzlun í
Leticia höfðu um langan aldur sótt
allan sinn varning yfir landamærin
og til Brasilíu. Það var miklu styttra
en fara alla leið til Bogatá. Mike
tóku nú mennina með sér til Bogotá
í flutningaflugvél sinni á áætlunar-
ferðum hennar, og það varð til þess,
að þeir tóku upp viðskipti við sína
eigin höfuðborg. Viðskiptahöldar í
Bogotá sáu fljótt, að þeim var hag-
ur af viðskiptunum við fólkið upp