Úrval - 01.07.1966, Qupperneq 80

Úrval - 01.07.1966, Qupperneq 80
78 ÚRVAL mönnum þykir nef þessa fólks helzt til flatt og það sækir á þaS fita með aldrinum. Það flúraði hörund sitt með sóti, sem sviðið var inn í hör- undið með tegldu beini og afmynd- aði mikinn hluta af leggjunum, þjó- hnöppunum, og búknum. Andlitið var ekki flúrað. Það bar einnig á sig kókosolíu, sem vildi þrána fljótt. Samt sem áður var þetta hreinlegt fólk. Karlmennrnir reyttu skegg sitt og bæði kynin reyttu hárið úr handvegunum. Það þvoði sér úr fjallalækjunum kvölds og morgna og miðjan dag, og föt þess voru hrein. Ekki var þetta fólk iðjusamt við vinnu, enda lítil ástæða til þess. Fæðan var allt umtiverfis það og auðvelt að afla hennar. Lónin voru full af fiski, brauðaldin og kókos- hnetur hengu í klösum yfir höfðum manna svo og bananar. Kolvetna- auðug yamrót og sykurreyrinn uxu þarna villt. Til hátíðabrigðis steikti fólkið sér lítil svín og alifugla í einskonar hlóðum. Áfengan drykk framleiddi þetta fólk einnig til há- tíðabrigðis, og vann það hann úr piparrót, sem nefndist ava, en tóbak þekkti það ekki og eiturlyf þekkti það ekki og virtist ekki finna fyrir þeirri vöntun. Nokkuð bar á húð- sjúkdómum, en hinar fögru tennur féllu ekki. Konurnar áttu auðvelt með að fæða börn, og yfirleitt má segja, að fólkið hafi ekki þekkt aðra sjúkdóma en ellihrumleika og þar af dauða. Þeir hættu sér lítið til fjalla — það var of erfitt — og Tahitibúar virtust sjálfum sér nóg- ir í listum og handíð. Þeir hreins- uðu börk af trjánum og börðu hann í klæði og iituðu hann með litar- efnum úr náttúrunni í kringum sig. Blöð pálmanna voru ofin í mottur og þök yfir skýlum þeirra og skel kókoshneturnar var drykkjarílátið. Barkarbátarnir voru vel unnir úr trjánum* og fylgdu þeim segl og * Þetta hljóta að hafa verið barkarbátar, enda er svo að sjá af myndinni sem fylg- ir greininni. En höfundur nefnir aðeins „canoe“, en kanóar gátu verið af þrem gerðum: Eintrjáningar, það er tré er var holað innan, og hefur auðvitað til þess þurft mikil eggverkfæri, í annan stað voru svo barkarbátar úr berki trjánna þéttir með harpeis og síðan húðkeipir. Þýð. árar. Fólkið svaf á jörðinni og hafði þess vegna enga þörf fyrir húsgögn. Þar sem vetur þekktist ekki, þekkt- ist heldur ekki kuldi og jafnvel um heitasta tímann blés hafgolan og færði fólkinu svala. Þarna voru eng- ar eðlur eða hættuleg dýr, sem ógn- uðu lífi fólks, og náttúruhamfarir eins og jarðskjálftar og hvirfilbyljir, voru fátíðar. Að undanskildum nokkrum tré- líkneskjum, voru tengsl þess fólks lítil við fortíðina, og það virtist láta sig það einu gilda. Trúarbrögð þess voru óljós og þokukennd, en það trúði samt á æðri máttarvöld, og átti sér musteri, „marae“ og graf- reiti í rjóðrum eða á ströndinni. Hin þjóðlega menningargeymd var munnmæli, sem gekk frá kynslóð til kynslóðar. Trúarhátíðum þeirra var stjórnað af sérstakri stétt manna, sem kallaðist „aridi“. Skemmtun þeirra var sú helzt, að láta hina þungu undiröldu Kyrrahafsins bera
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.