Úrval - 01.11.1966, Blaðsíða 8
6
ÚRVAL
og kollsteyptist bíllinn undir hon-
um.
Honum var ljóst að hann ætti
það fyrir augum að frjósta í hel ef
ekki hittist svo á að annar maður
kæmi að akandi, en það var vonlítið,
það var fangaráð hans að taka snjó-
keðjurnar af bílnum og kasta þeim
yfir rafmagnslínuna, sem lá með-
fram veginum. Af þessu hlauzt gíf-
urlegt skammhlaup, en á næstu
gæzlustöð urðu menn auðvitað und-
ir eins varir við það, og eftir þrjá
stundarfjórðunga var viðgerðar-
flokkur kominn á vettvang.
Handan við Nelsonvirki (Fort
Nelson) stefnir vegurinn í vesturátt,
og sækir upp í hin snæviþöktu
Klettafjöll. Öryggishandrið sjást
varla nokkursstaðar. Stundum er
lengi ekið um samfelldan skóg, sem
hvergi sér út, unz skyndilega er
komið á krappa og stórhættulega
beygju. Hafi maður ekki tekið eftir
viðvörunarmerkinu og hemlað tím-
anlega, þá er voðinn vís, því fram-
undan er ekki akvegur og ekki
skógarþykkni, heldur aðeins blátt
loftið og hengiflug, en þrjú hundr-
uð metrum neðar sjást þúsundir
trjátoppa.
LJÓS í GLUGGANUM.
Ef lengra er haldið, er komið í
Yukon-hérað og til Whitehorse, sem
var miðstöð gullæðisins 1898. Hand-
an við Whitehorse er ekki um aðra
mannabústaði að ræða, en hin fáu
gisti- og veitingahús, sem standa
við veginn með fimmtíu til sextíu
kílómetra millibili. Og einmitt á
þessum jöðrum menningarinnar
finna menn bezt hinn sanna anda
Alaskabrautarinnar. Gestgj afahj ón-
in, því víðast hvar eru það hjón,
sem lifa á því að selja bensín og
steikja „Hamborgara“, stunda þetta
starf af alúð og tillitsemi. Þegar
þau fara að sofa á kvöldin, skilja
þau eftir ljós í glugganum, og öðru
megin er spjald með áletruninni:
„Gerið svo vel að taka eitt af ólæstu
herbergjunum. Við gerum upp í
fyrramálið."
Við Haines Junction (Vegamótin
til Haines) getur sá, sem vill, vikið
af Alaskabrautinni og ekið 255 km.
leið til Haines í suður og farið það-
an með bílferju til Prince Rupert
suður í Brezku Kólumbíu. Frá
Prince Rupert hafa nú undanfarin
fjögur sumur gengið bílaferjur fra
Alaska sex sinnum á sumri, stórar
og þægilegar eins og millilandaskip-
En leiðin er kölluð innri leiðin og
liggur meðal eyja þeirra sem eru
úti fyrir ströndinni og til borga og
þorpa í Suður-Alaska, en það
land teygir sig býsna langt suður
eftir. í maí síðastliðnum var einnig
tekin í notkun kanadísk ferja, sem
gegur milli Prince Rupert og Van-
couver, svo að nú er hægt að fara
ferðina um Alaska aðra leiðina að
mestu leyti með skipi, ef maður
kærir sig ekki um að aka báðar
leiðir.
Við beygðum ekki út af hjá
Haines Junction, heldur héldum við
okkur á aðalbrautinni, ókum með-
fram Elíasarfjöllum og sáum trjá-
stúfinn þar sem merkt hefur verið
kuldamet Norður-Ameríku: 62,8
stig C undir frostmarki. Við Tok
fórum við þó af aðalbrautinni og
stefndum í vesturátt til Anchorage.