Úrval - 01.11.1966, Síða 18
16
ÚRVAL
Gibraltar gengur undir nafninu
„Kletturinn" eða „Hamarinn" og
slíkt nafn nægir. Það er ekkert hon-
um líkt, hvorki hvað mikilfengleika
snertir né geysisterk söguleg tengsl.
Maðurinn hefur líklega ráðið þar
ríkjum eins lengi og á nokkrum öðr-
um stað á jarðríki. Fyrst hefur hann
klifrað upp í hæðir Klettsins til
þess að leita sér að griðastað og
síðar til þess að skapa sér góða víg-
stöðu til viðhalds völdum sínum.
Það getur verið, að það hafi ein-
mitt verið hér, sem steinaldarmað-
urinn steig fyrst fæti sínum á grund
Evrópu á ferð sinni sunnan úr Sa-
hara, sem var að breytast í eyði-
mörk. Gibraltar hefur verið heim-
kynni forsögulegra dýra, mustera,
sem reist voru Satúrnusi til dýrðar,
og einkaeign spænsks hertoga. En
svo lengi sem sögur greina, hefur
Gibraltar fyrst og fremst verið
virki, sem leit út fyrir að vera al-
gerlega ósigrandi og hefur því ver-
ið eftirsóttasta herfang, sem um
greinir.
Gibraltar rís þverhníptur and-
spænis hinum úfnu fjöllum Afríku-
strandar. Einhvern tíma hafa ofsa-
legar jarðhræringar blátt áfram
rifið Klettinn frá strönd þessari. Og
þarna gætir kletturinn þýðingar-
mestu siglingaleiðar heims, hins 15
mílna breiða sunds, sem aðskilur
Evrópu og Afríku. Skip, sem fara
milli Atlantshafs og Miðjarðarhafs,
verða að sigla fram hjá risa þess-
um. Það hefði reynzt miklu erfiðara
að koma hinu brezka heimsveldi á
laggirnar og viðhalda því, ef hans
hefði ekki notið við. Sama er að
segja um sigur Bandamanna í síð-
Einn af hinum frægu Barbary öpum, st‘in
hafa haldiö til þar, frá dögum Mára.
ari heimsstyrjöldinni. Kletturinn
auðveldaði hann stórlega.
Gibraltar er í rauninni geysistor
gráhvítur hamar, sem gnæfir upp
úr bláu Miðjarðarhafinu og virðist
ögra öllu umhverfi sínu. Maður
fyllist tafarlaust lotningu, er mað-
ur lítur hann. Hann er sem dom-
kirkja úr kletti, og inn í hina leynd-
ardómsfullu hella við rætur hans
streymir ólgandi sjórinn. Kletturinn
sjálfur er úr kalksteini, ekki granit,
eins og almennt er haldið. Gervöll
nýlendan er aðeins 4 mílur á lengd
og ein míla á breidd og er á stærð
við eyjuna Alderney við Bretlands-
strendur. Gibraltar væri eyja, ef
ekki væri um að ræða mjótt eiði>