Úrval - 01.11.1966, Page 63

Úrval - 01.11.1966, Page 63
GANDREIÐ Á TUNDURSKEYTI 61 þrem brezkum tundurspillum. Þann dag var útvarpað lista yfir þá, sem hækkaðir höfðu verið í tign. Sam- kvæmt gamalli venju í brezka og kanadiska flotanum, er slíkur listi birtur tvisvar á ári. Ég var hækk- aður í tign, og var mér skipað að gefa mig fram við flotamálayfir- völdin í Halifax í Nova Scotia, en þar fengi ég upplýsingar um það, hvaða skyldustörf biðu mín næst. Herbert Rayner, sem var tundur- skeytasérfræðingur, átti að verða eftirmaður minn á St. Laurent. Næstu viku vorum við mjög störf- um hlaðnir, og því höfðu mennirn- ir í tundurskeytasveit okkar engan tíma til að „snyrta“ vopn sín. gljá- fægja þau og snurfussa, áður en nýi skipstjórinn kæmi í skoðunarferð sína. Og hvern skyldi hafa grunað, að loks þegar þeim gæfist tími til slíks, myndi einn geysilega áhuga- samur piltur leysa tundurskeyti, al- veg óvart að vísu, og beina því gegn okkar eigin skipi? Þann 2. júlí að morgni dags var St. Laurent sent til þess að leita að skipsbrotsmönnum af gufuskipi, sem hafði verið sökkt þennan sama morgun fyrir vestan írland. Leitin gekk að óskum, og við settum 859 manns á land í Greenock á vestur- strönd Skotlands. Að því loknu var okkur skipað að halda til Rosyth, sem er flotahöfn á austurströndinni. Við vorum að sigla upp með vest- urströndinni á leið til Rosyth síð- degis á sunnudagi ásamt öðrum kanadiskum tundurspilli, H.M.S Skeena, þegar ósköpin dundu yfir. Við sigldum um Minches og Pent- landsfjörðinn. Skeena kom í hum- átt á eftir okkur á stjórnborða í tæplega 300 metra fjarlægð. Við sigldum norður á bóginn innan við Vestureyjarnar, en það var ekki til- takanlega hættuleg siglingaleið, og óttuðumst við því ekki mjög, að óvinirnir næðu til okkar. Tundurskeytaliðarnir, sem voru á verði, voru að hreinsa, fægja og mála tundurskeytaskotrörin. Öll rör- in voru hlaðin tundurskeytum, en á þeim var öryggisútbúnaður til þess að tryggja það, að tundurskeyti yrði ekki skotið alveg övart. Ör- yggisútbúnaður þessi var bara ein- falt handfang, sem tekið var í, og þá losnaði tundurskeytið. Fjögur „skotrör" eru venjulega höfð tilbúin frammi á skipinu og önnur fjögur aftur á því, og svo er skotrörunum snúið og beint í áttina frá skipinu, áður en tundurskeyti er miðað og skotið. Tundurskeyta- hleðsla knýr síðan þennan smurða, 24 feta langa og hálfs annars tonns þunga „stálfisk" út úr rörinu, sem hann liggur í og út í sjóinn það langt frá skipshliðinni, að skipinu sjálfu sé engin hætta búin. Vél tundurskeytisins fer í gang, strax þegar tundurskeytið tekur undir sig þetta mikla stökk. Aftast á tundurskeytinu eru tvær andsnúningsskrúfur, sem knúðar eru af eldsneyti og samþjöppuðu lofti með 200 ,,atmosphera“ þrýst- ingi. Þær knýja þetta banvæna vopn í áttina til skotmarksins á allt að 45 hnúta hraða. Er framendi þess tekur stefnuna á skotmarkið og þýt- ur í gegnum vatnið, fær tundurhaus skeytisins, sem er hlaðinn sprengi- efni, skilaboð um að fara í gang. Út-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.