Úrval - 01.11.1966, Síða 77
PAPA HEMINGWAY
75
var alveg ágætur. Lét mig fá eitt-
hvað handa nýrunum og klippti burt
allt dauða holdið eftir brunann,
prýðislæknir, fyrsta flokks, en
heyrðu annars, Hotch . . . . “ Hann
klóraði sér í skegginu um stund og
virtist augsýnilega fara hjá sér. Svo
brosti hann: „Aandskoti er ég feg-
inn að sjá freknótta smettið á þér
aftur.“
Hann hikaði svolítið, en svo fór
hann að tala aftur og var nú alvar-
legri í bragði: „Sko, það, sem mér
datt í hug í sambandi við þessa
ferð .... hlustaðu nú á mig, setztu
«
Ég settist á salernissetuna.
Hann var skyndilega búinn að
breyta baðherberginu í skrifstofu.
,,Nú er ég búinn að opna frá skjóð-
unni og segja þér hreinskilnislega
frá því, hve vesæll og aumur ég er .
.... Þú veizt, að ég hef alltaf þagað
yfir því, hvað ég hefði í hyggju að
skrifa, sko, nokkurs konar birgða-
könnun, nokkurs konar vátrygging
gegn getuleysinu, en sko, ég er í
þannig skapi núna, að mér finnst,
að við ættum bara að slaka á og
láta okkur líða vel. Þetta er fallegt
land, sem við förum um, og ég gæti
sagt þér svolítið frá því, svo að ein-
hver viti um það, ef það verður
aldrei neitt úr því, að ég skrifi um
það. Ég vil ekki vera svartsýnn, en
er ekki hvert nýtt líftryggingarskír-
teini nokkurs konar tákn um svart-
sýni?“
„Fjandinn hafi það, Papa, gefðu
sjálfum þér tíma og tækifæri til þess
að skríða saman. Hafðu engar
áhyggjur af birgðakönnuninni. Þú
færð tækifæri til þess aS taka hana
fyrr eða síðar.“
„Ja, þú skalt nú ekki veðja á
það,“ sagði hann, „fyrr en þú veizt
um líkurnar og hlutföllin milii
þeirra. Hann gekk á undan mér út-
úr baðherberginu, og það glaðnaði
yfir honum, þegar hann sá nýja
kampavínsflösku í kælinum. Þetta
var ein uppáhaldstegund Mary, og
ég spurði um líSan hennar, meðan
hann var að taka flöskuna upp.
„Það er allt í lagi með Mary núna,
en lífið í „finkukofanum“ varð helzt
til erfitt, rétt áður en við héldum
til hinnar „Myrku Álfu.“ Hann
smakkaði á kampavíninu og kink-
aði kolli. Hann lýsti atburðinum,
sem hafði valdið því, að hann féll
í ónáð, og það var nú ónáð, sem um
munaði, bætti hann við.
„Ég sigldi fyrir fullum seglum,"
sagði hann. Mary var svolítið hörð
í horn að taka, en alveg ágæt. Það
er alveg sama, hvað sagt er, kven-
fólk með bein í nefinu er eina kven-
fólkið, sem máli skiptir. Það á að
meðhöndla þær nærfærnislega og
sýna þeim blíðu. Vertu nærgætinn
og blíður, jafnvel þegar slíkt er
fjærst þínu skapi. Það er aðeins
þrennt í lífi mínu, sem mér hefur í
rauninni þótt gaman að gera, að
veiða, að skrifa og að eiga ástamök.
Þú gétur kann'ske gefið mér gott ráð,
hvað allt þetta snertir, skotfimi,
skriftir eða ástarmök, en þú getur
ekki kennt mér neitt í því, hvernig
taka skal land í höfn.“
„Ég þykist vita, að þér hafi tekizt
að smeygja þér inn í hjarta Mary á
nýjan leik?
„Ég segi þér það satt, það er
heilmikið af kvenfólki í þessum