Úrval - 01.11.1966, Qupperneq 98

Úrval - 01.11.1966, Qupperneq 98
96 ÚRVAL. fimm sama dag. Hann skýrði frá því ,að læknarnir við Mayosjúkra- húsið krefðust þess, að Ernest kæmi þangað af frjálsum vilja, en Ern- est neitaði algerlega að fara þang- að. „Ég hringdi í dr. Renown,“ sagði ég, „og hann ætlaði að hringja til Mayosjúkrahússins og svo í þig.“ „Hann er þegar búinn að hringja. Hann gerði allar nauðsynlegar ráð- stafanir Ernests vegna á Mayo- sjúkrahúsinu og ræddi við þá um það, hvernig öllu skyldi hagað. En ég held, að hann viti ekki um skil- yrði það, sem þeir hafa sett, þ.e. að Ernest fari þangað að frjálsum vilja. Hann hefur ekki lengur neinn frjálsan vilja. Um hvað eru þeir eiginlega að tala? Dr. Ausley sam- starfsmaður minn er að hjálpa mér með þetta, og við erum að reyna allt sem við getum, en hér er um að ræða baráttu við tímann. Við höf- um ekki hinn rétta aðbúnað hér til þess að geta hjálpað honum, og ég segi þér það satt, Hotch, að það er heilagur sannleiki, að kom- um við honum ekki á réttan stað og það fljótt, mun hann alveg ör- ugglega stytta sér aldur. Það er aðeins tímaspursmál, ef hann verð- ur kyrr hérna, og möguleikarnir vaxa með hverjum klukkutíman- um. Hann segist ekki geta skrifað lengur, segir, að hann hafi ekkert að lifa fyrir lengur. Hotch, hann mun aldrei skrifa framar. Það er ástæðan, sem hann álítur sig hafa til þess að stytta sér aldur. Það að minnsta kosti yfirborðsástæðan. Og hana verð ég að taka sem góða og gilda vöru, því að ég hef eng- ar aðstæður né sérkunnáttu til þess að snúast gegn því, sem undir yf- irborðinu býr. En mér finnst þetta nægilega gild ástæða út af fyrir sig, og ég get sagt þér það satt, að ég er óskaplega áhyggjufullur. Við höfum sprautað heilmiklu af sodium amytal í hann, en hversu lengi get- um við haldið honum í því ástandi? Ég segi þér það satt, að þetta er hræðileg ábyrgð fyrir venjulegan sveitalækni. Það er ekki bara um það að ræða, að hann sé vinur minn, heldur er hann þar að auki Ernest Hemingvoay! Við verðum að koma honum í Mayosjúkrahús- ið.“ Næsta dag hringdi Mary í mig. Hún var augsýnilega í hræðilegu uppnámi. Það hafði gerzt hræðileg- ur atburður þá um nóttina. Vernon hafði loks fengið Ernest til þess að fallast á að leggjast aftur inn í Mayosjúkrahúsið, og það hafði þegar verið beðið um leiguflugvél frá Hailay. En Ernest sagði, að hann yrði að ná í nokkra hluti inn í hús- ið, áður en hann gæti lagt af stað. Vernon gaf samþykki sitt með hálf- um huga, en fyrst hringdi hann í Don Anderson, sem er bæði stór og sterkur, og bað hann um að slást með í förina. Vernon hafði Mary og hjúkrunarkonuna einnig með í þessari flugferð. Þau óku nú öll upp að húsinu, og Ernest lagði af stað í áttina til dyranna. Á eftir honum kom Don, svo hjúkrunarkonan, svo Mary og loks Vernon. Skyndilega tók Ernest á rás í áttina til dyranna, þaut inn, skellti hurðinni aftur á eftir sér og setti slagbrand fyrir, áður en Don
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.