Úrval - 01.08.1968, Síða 24
22
ÚRVAL
Dcivid Douglas.
niður furuköngla, sem héngu of
hátt, og hann bætti í safn sitt. Á
bakinu bar hann þungan málm-
kassa, sem í voru sýnishorn, sér-
stakt duft til þess að varðveita
blómin, þerripappír, vísindatæki,
blekbytta og dagbók.
Til þess að ná í sýnishorn af
plöntum og iafnvel þótt væri að-
eins af sérstöku grasi eða illgresi,
var Douglas reiðubúinn til að þola
alla þá erfiðleika, sem fyrir gátu
komið. Eftir ferð eina yfir eyði-
merkur norðvestursins skrifaði
hann: „Hér teygir landið sig í all-
ar áttir, hér eru naktar hæðir, þar
sem megnið af gróðrinum hefur
brunnið eða drepizt. Eg varð að
fara yfir hvíta sandeyðimörk í 36
stiga hita og gekk 19 mílur án þess
að fá dropa af vatni. Hitinn og end-
urgeislunin frá sólargeislunum
kvöldu mig mikið og varla get ég
lýst því hvernig fætur mínir voru
útleiknir um kvöldið af hitanum og
hinum þurra sandi; þeir voru allir
eitt flakandi sár.“
En slík ævintýri voru hans ær og
kýr. Verzlunarmaður Hudsonflóafé-
lagsins man eftir honum sem „ein-
um af hinum skemmtilegustu og
einlægustu félögum í hinum þrönga
félagsskap í Vancouver virkinu“.
í fyrstu sendingunni, sem Dougl-
as sendi til Englands voru hundruð
sýnishorna. Öll voru þau vel varð-
veitt og þeim lýst nákvæmlega i
athugasemdum hans. Eitt af þeim
var hin mikla fura, sem í dag heit-
ir eftir honum.
Dag einn á öðru ári hans þar,
tók Douglas eftir fræjum og köngl-
um af furutré, sem hann hafði aldr-
ei séð áður, í poka hjá indíána
nokkrum. Indíáninn sagðist hafa
tínt þetta af tré einu, sem hefði
sætkenndan börk, og yxi í fjöllun-
um fyrir sunnan Kólumbíaána.
Douglas var því mjög spenntur
er hann lagði af stað yfir Cascades
fjöllin með skinnaleiðangri, sem var
á suðurleið. Grábjörn réðist á leið-
angurinn og matarbirgðirnar voru
orðnar af skornum skammti. Daugl-
as, sem var að elta særðan hjört,
datt niður í gil, særðist á fæti og'
hökti til búðanna á hækjum, sem
samanstóðu af kvíslaðri grein og
byssunni hans.
Að lokum yfirgaf Douglas leið-
angurinn til að leita að furunni
hærra upp í fjöllunum. Eftir þrjá