Úrval - 01.08.1968, Page 52
50
ÚRVAL
frumkrafta náttúrunnar — jörð, eld
og vatn.
Vegna löngunar okkar til að
kynnast þessum frumkröftum, ók-
um við, þrír Bandaríkjamenn ásamt
finnskum gestgjafa okkar, til Vas-
kinemi í útjaðri Helsinki, þar sem
hafið og birkiskógarnir mætast. Þar
fórum við í sauna. Við klæddum
okkur úr hverri spjör og hneigðum
okkur virðulega fyrir gæzlumanni
baðsins, roskinni konu, sem var í
óða önn að nudda mannveru, er lá
þarna á stórum bekk.
Því næst fórum við inn í gufu-
herbergið, sem var dimmur og lítill
klefi, auðþekktur af öllum, sem les-
ið hafa Dante: Nokkrar fordæmd-
ar sálir sátu þarna rennandi sveitt-
ar á bekkjunum og földu andlitið í
höndum sér. Steinhnullungar, sem
hitaðir voru yfir eldi frá birkiviðar-
bútum, hituðu herbergið mjög mik-
ið. Þó að mælirinn sýndi 130 stig á
Fahrenheit, fannst leiðsögumannin-
inum það ekki nóg og skvetti því
vatni á steinana til að auka gufuna.
Reykherbergið er og mjög forn
gerð af sauna og er algengt jafn-
vel á hinum allra fátækustu heim-
ilum. í Finnlandi eru 900.000 sauna
böð, eitt á hverja sex íbúa. Reykur-
inn gefur af sér hressandi og töfr-
andi angan, segir í ferðapésanum.
Næmt fólk er mjög hrifið af opnum
eldinum.
Þrjár næmar mannverur stóðu
þarna og horfðu hugfangnar í eld-
inn. Því næst skreiddumst við út
úr klefanum og inn í annan mjög
heitan, en reyklausan. Ekki fannst
Kai, leiðsögumanni okkar samt nógu
heitt þar inni, þó að hitamælirinn
sýndi 176 stig á Fahrenheit.
„Þetta er ekki sauna,“ sagði hann
og tók að fást við eldinn. „Það
hlýnar eftir eina eða tvær mínútur.“
Og áður en leið á löngu var hitinn
orðinn 219 stig. Trúboðar eru steikt-
ir við 212 stig!
Þá nota menn birkigreinaknippi
til að lemja sjálfa sig. Kai hellti
vatni á gólfið og bekkina, til að kæla
þá, en það gufaði upp samstundis.
Og þó að við sætum á þykkum
handklæðum, voru seturnar óþægi-
lega heitar.
Einnig veltu menn sér til skipt-
is á gólfinu og lömdu sig með birki-
greinunum eins og meinlætamenn.
Að því loknu hlupum við út og
böðuðum okkur í sjónmn.
Finnski' flóinn er mjög kaldur og
það eru mikil viðbrigði að stinga
sér beint í sjóinn úr heitri gufunni.
Því næst þvoðum við okkur, en
við það hjálpaði gæzlukonan. Hún
bar fyrst á okkur sápulög, en nudd-
aði okkur síðan vel og vandlega, og
að lokum neri hún höfuð okkar
með röku, grófu handklæði. Mikil
vellíðan fer um mann, þegar þess-
ari meðhöndlun er lokið, og kraft-
ur og þrek býr í hverjum vöðva og
taug.
Þetta er sauna. Og þegar menn
hafa einu sinni kynnzt því, geta
þeir vart án þess verið. Á veturna,
þegar sjórinn frýs, er að sjálfsögðu
ekki hægt að synda en þá velta
menn sér upp úr snjónum í staðinn.