Úrval - 01.08.1968, Blaðsíða 86
84
ÚRVAL
færa sér líka þessa vitneskju. Þeir
meta og mæla áhuga hins mögu-
lega kaupanda og sjá þannig nokk-
urn veginn, hversu hátt verð hann
kann að vera reiðubúinn til þess að
borga. Þeir fylgjast bara með aug-
um hans.
Sjáöldur í augum karlmanna, eru
miklu stærri, þegar þeir horfa á
myndir af konum en þegar mynd-
irnar eru af körlum. En sjáöldur í
augum kvenna eru stærri, þegar
þær horfa á karlmenn en konur.
Sálfræðilegar rannsóknir á þessu
sviði fóru fram við Ríkisháskólann
í Michigan, og sýna þær, að sjáöldur
augans sýna tafarlaus viðbrögð við
tilfinningalegum örvunum. 95%
þeirra, sem rannsakaðir voru, sýndu
einnig sömu viðbrögð, þótt einungis
væri um að ræða orð tilfinninga-
legs eðlis. Sjáöldrin þöndust samt út.
Engin slík viðbrögð komu fram,
þegar um var að ræða orð, semvoru
„hlutlaus".
Ef þér geðjast að einhverri per-
sónu munu sjáöldur þín þenjast út,
er þú hittir þá persónu. En sé af-
staða þín hlutlaus gagnvart persón-
unni, er ekki líklegt, að sjáöldrin
breytist neitt. En geðjist þér aftur á
móti illa að persónunni eða segi
þessi persóna eitthvað, sem styggir
þig eða móðgar, munu sjáöldur þín
dragast saman. Sjáaldrið þenst út
við ánægjukennd og dregst saman,
þegar eitthvað ógeðfellt verður á
vegi þínum eða eitthvað veldur þér
óánægju. En auðvitað verður að
taka birtustyrkleikann með í reikn-
inginn, þegar meta skal sjáaldurs-
viðbrögð.
Þessi rannsókn við Chicagoháskól-
ann leiddi í ljós, að sjáöldur okkar
sýna viðbrögð, jafnvel þegar við
reynum að dylja okkar sönnu til-
finningar, og þessi viðbrögð spanna
geysimikið svið, allt frá hinni mestu
útþennslu til mikils samdráttar. Sjá-
aldurviðbrögð sýna þannig, hvað
fólki finnst í raun og veru um flesta
hluti.
Spyrji skoðanakannari kjósanda
um frambjóðendur stjórnmálaflokk-
anna, ætti hann að fylgjast með sjá-
öldrum kjósandans, er hann nefnir
nöfnin. Við getum hagað orðum okk-
ar í samræmi við það, sem við vilj-
um láta uppi, en við höfum aftur á
móti enga stjórn á viðbrögðum sjá-
aldranna.
Þessi uppgötvun gæti haft mikla
þýðingu, hvað snertir skoðanakann-
anirljineðaíiaieýtenda. Þegar Viúsmóð-
irin er spurð um skoðanir sínar á
ýmsum vörutegundum eða þjónustu,
gæti sjálfvirk myndavél „skráð“
hina breytilegu stærð sjáaldra henn-
ar á filmu. Þegar skoðankannarar
spyrja um álit manna á ýmsum hlut-
um, litast svörin oft af því, sem
mönnum finnst, að búizt sé við, að
þeir svari.
Pokerspilari ætti að hafa nánar
gætur á sjáaldursviðbrögðum mót-
spilarans, þegar hann dregur spil úr
stokknum. Stækki sjáöldrin, hefur
mótspilarinn líklega fengið þau spil,
sem hann vantaði. En verði hann
fyrir vonbrigðum, er líklegt, að sjá-
öldrin dragist saman. Sé hann
hvorki sérstaklega ánægður né óá-
nægður, er líklegt, að sjáöldrin
breytist ekki.
Þeir, sem athuganir þessar gerðu,
sýndu hóp manna tvær myndir af