Úrval - 01.08.1968, Side 105
MISSKILNINGUR UM MIÐALDRA FÓLK
103
miðaldra, fyrr en hann er vel fer-
tugur. Því síðar, sem maðurinn lýk-
ur menntun sinni og eignast börn,
þeim mun seinna verður hann mið-
aldra.
Álitið er, að miðaldra fólk vildi
gjarna verða ungt í annað sinn.
Þetta er ekki rétt. Rætt var við
eitt hundrað miðaldra miðstéttar-
fólk, bæði karla og konur, sem
flestum bar saman um, að æskuár-
in hafi verið fremur óþægilegt tíma-
bil. Því hafi fylgt óöryggi og innra
eirðarleysi.
Eftir því sem frú Neugarten held-
ur fram, hafa flestir miðaldra menn
áhyggjur út af líkamsþreki sínu.
Þeir fylgjast vel með líkamanum,
þunga hans og útliti og hjá þeim
kemur fram tilhneiging til að reyna
að hlífa sér. Láta þeir þá undirmenn
sína gjarnan vinna úr ýmsum smá-
atriðum, sem þeir sáu áður um sjálf-
ir, og leitast við að forðast alla þá
spennu, sem þeir geta.
„Miðaldra konur hafa hins vegar
minni áhyggjur út af heilsufari sínu,
en þeim mun meiri út af heilsufari
eiginmannsins. Þær fara að hugsa
betur um hann og gefa meiri gaum
að mataræði hans. Hún býr sig und-
ir að verða ekkja og í ímyndun
sinni finnur hún einmanaleikann,
sem hlýtur að vera því samfara. En
til þess að þessar hugrenningar verði
henni ekki ofraun, tekur hún þátt í
margháttuðum félags- og þjónustu-
störfum,“ segir frú Neugarten.
Sú trú er útbreidd, að á miðjum
aldri dofni kynhvötin og að með
miðaldra fólki ríki jafnvel algjör
kyndeyfð.
Þetta er ekki rétt. Þetta er skoð-
un, sem ekki er á rökum reist. Sam-
kvæmt áliti dr. William Masters,
sem er höfundur að bókinni Human
Sexual Response ásamt Virginu
Johnson, eiga flest vandamál í sam-
bandi við kynferðislíf fólks sér stað
á miðjum aldri.
Margir álíta, að þegar tíðum mið-
aldra kvenna lýkur fyrir fullt og
allt, eigi þær oft við margvísleg
geðleg vandamál að stríða.
Þetta er heldur ekki rétt. 96 þeirra
100 kvenna, sem frú Neugarten
ræddi við, sögðu, að þeim hefði
fundizt það skipta harla litlu máli,
þegar tíðirnar hættu. f ljós kom, að
þessar fjórar konur, sem tóku þetta
nærri sér, höfðu áður fyrr átt við
vandamál að glíma í sambandi við
kynlíf sitt, eða voru haldnar hjá-
trúarfullum hugmyndum, sem þær
höfðu numið úr kerlingabókum.
Sú skoðun ríkir margra á meðal,
að miðaldra konum finnist þær hafa
orðið fyrir miklum missi, þegar börn
þeirra vaxa upp og fara að heiman.
Hér er einnig um mikinn misskiln-
ing að ræða, því alltof mikið er gert
úr þessu atriði. Frú Neugarten
komst að raun um, að margar kon-
urnar eru því fegnar, þegar börnin
fara að heiman, því að þá hafa þær
margar hverjar fyrst tækifæri til að
leita sér nýrra starfssviða.
Þá er það skoðun margra, að mið-
ur aldur sé tímabil stöðnunar.
Þetta er einnig mjög mikill mis-
skilningur, því að á miðjum aldri
á sér oft stað mikill innri þroski.
„Við teljum margir hverjir,“ segir
sálfræðingurinn Marjorie Fiske
Lowenthal, ,,að á miðjum aldri eigi
fólk oft í innri erfiðleikum, ekki