Úrval - 01.08.1968, Síða 130
128
ÚRVAL
rekur litla verzlun í félagi við ann-
an mann. Þau litu inn í skrifstofu
mína til þess að sýna mér trúlof-
unarhringana. Tammy var stolt af
demantinum í hringnum, og unnusti
hennar var stoltur af því, að hring-
urinn „hafði verið borgaður út í
hönd“. Þau giftust fyrir nokkrum
mánuðum og hafa setzt að í litlu
húsi í úthverfi.
Það kann að vera, að þessi síð-
asta þróun í máli Tammy Wells sé
ósköp hversdagsleg, að það sé ekk-
ert sérstakt um þetta að segja. En
þó má segja, að allar horfur séu á
því, að hún muni eiga sér gæfuríka
framtíð, og það eitt er stórmál, þeg-
ar manni verður hugsað til þess, að
það er ekki svo langt síðan Tammy
taldist til þess hóps afbrotaæskunn-
ar, sem minnsta möguleika hefur
á að láta sér verða eitthvað nýti-
legt úr lífi sínu.
Ef allir hefðu álitið, að það væri
alveg vonlaust verk að ætla að
ætla að bjarga þeim stúlkum, sem
nú hefur verið komið á réttan kjöl
í „Birkikofa“, hefðu þær átt eftir
að kost.a þjóðfélagið geysilegar fjár-
fúlgur vegna sakamálarannsókna,
ýmissa félagslegra ráðstafana, sem
hefði orðið að gera þeirra vegna,
og kostnaðar vegna fangelsisdvalar,
svo að ekki sé minnzt á það, sem
til spillis hefði farið í mannlegu til-
liti, þ. e. glatað líf stúlknanna. —
Hversu skynsamlegra og indælla er
það þá ekki að koma á laggirnar
stofnun sem ,,Birkikofa“ og ráða
þangað starfsfólk, sem hefur vilja
og hæfileika til þess að breyta slíkri
stofnun úr fangelsi í stað, þar sem
hið ómögulega verður mögulegt og
þar sem vonin deyr aldrei!
☆
Stefnumót..................
Tvær önnum kafnar rnæður, sem voru að aka börnunum sínum
í skólann, rákust á morgun einn, eða réttara sagt bílarnir þeirra. Þær
stigu út, athuguðu skemmdirnar, en komust svo að þeirri niðurstöðu,
að þær hefðu í rauninni alls ekki tíma til þess að lenda í ekta árekstri
að svo stöddu, heldur áikváðu þær að hittast aftur seinna. Siðari
hluta dagsins óku þær því aftur á slysstaðinn, mjökuðu bílunum til,
þangað til þeir voru komnir í nákvæmiega þá stöðu, sem þeir voru í
við áreksturinn, og hringdu svo í lögregluna.
F.P.
Velklædd kona gekk yfir að afgreiðsluborði mínu i deildaverzlun
Macy’s i New York og sagði: „Ég keypti þessa orðabók af yður í gær,
en ég hef ákveðið að skila henni aftur. Ég mundi aldrei nota öll
þessi orð.“
Catharina Connell.