Úrval - 01.09.1971, Blaðsíða 19
HVER SYRGIR HERBIE WlRTH?
17
ÚR READERS DIGEST
EFTIR
JOSEPH P. BLANK
að ganga hús úr húsi í Northside-
hverfinu í Indianapolis og bjóða
húsmæðrum ýmsar vörur til heim-
ilishalds. Prestsfrúin hafði keypt
diskaþurrkur af honum, og hann
minntist þess óljóst að hafa ein-
hvern tíma séð Wirth: „Lítill mað-
ur, grátt hár hans var alltaf vand-
lega greitt, alltaf kurteis, aldrei of
ýtinn í sölumennsku sinni. Hann
hafði aldrei neitt sérstakt á boðstól-
um, sem okkur langaði til að kaupa,
en við keyptum samt alltaf eitthvað
af honum.“ Hver mundi fylgja slík-
um manni til grafar?
ALEINN MITT í MANNHAFINU
Herbert Wirth fannst ekki, að
hann væri nokkrum manni hér í
heimi mikils virði. Hann var 73 ára
að aldri, rúm 5 fet á hæð, lítill og
pervisinn maður. Hann leit ekki út
fyrir að vega meira en 100 pund.
Hann átti enga ættingja. Engir vin-
ir heimsóttu hann, og hann heim-
sótti ekki neinn. Hann bjó einn í
snotru, hvítu timburhúsi, sem hann
hafði erft eftir móður sína, sem dó
árið 1957.
í 27 ár samfleytt starfaði Herbie
að sölumennsku sinni með smáhlé-
um og þrammaði götu eftir götu og
hús úr húsi. Síðustu 11 árin vann
hann við þetta a. m. k. 6 daga vik-
unnar. Hann gekk alltaf undir nafn-
inu Herbie. því að mjög fáir vissu,
hvert ættarnafn hans var. Hann bar
jafnan tvo stóra pappírspoka fulla
af diskaþurrkum, þvottapokum,
pottaleppum, pottasköfum, hár-
böndum, skóreimum og fleiri slík-
um vörum. Allt kostaði þetta 25
cent að undanskildum skrautlegum,
handofnum pottaleppum, sem búnir
voru til af unglingsstúlku einni, sem
bjó við sömu götu og hann. Þá seldi
hann fyrir hana á 50 cent stykkið
og neitaði að taka nokkur sölulaun
af henni. „Ég get ekki fengið þessa
fallegu pottaleppa hjá þeim, sem ég
fæ vörurnar mínar hjá,“ sagði hann
við hana. „Og ég veiti bara við-
skiptavinum mínum betri þjónustu
með því að hafa þá á boðstólum."
Hann fór alltaf að heiman á
morgnana klukkan hálf níu og hélt
fyrirfram skipulagða leið, sem tæki
hann 8—9 tíma að fara. Hann leit
ekki á sjálfan sig sem götusala. „Ég
er venjulegur sölumaður," sagði
hann stundum við gamla viðskipta-
vini, „og ég beiti sálfræðilegum að-
ferðum við sölustörf mín. Ég býð
aðeins fyrsta flokks vörur. Ég skipu-