Úrval - 01.09.1971, Page 22

Úrval - 01.09.1971, Page 22
20 ÚRVAL bara það litla, sem við getum gert.“ En hve það er hræðilegt, að eng- inn, sem þekkir Herbie, verður við- staddur jarðarför hans! hugsaði konan. Nei, það skal ekki verða þannig. Ég ætla að fara. Sama hugs- unin var að fæðast í huga ýmissa annarra, sem höfðu þekkt Herbie. Ekkja ein, sagði við grannkonu sína: „Það hefur gerzt dálítið sorg- legt! Hann Herbie er dáinn.“ Þá svaraði nágrannakonan: „Ég var einmitt að hugsa um hann í gær. Ég var einmitt að bíða eftir því, að hann kæmi, svo að ég gæti keypt af honum diskaþurrkur." Hún fór að gráta. „Hann á engan að,“ sagði vinkona hennar, „alls engan. Við verðum að fara.“ „Já, við verðum að vera við- staddar jarðarförina." Blaðamaður við „Stjörnuna“ í Indianapolis, sem hafði eitt sinn átt viðtal við Herbie Wirth um líf hans sem umferðarsala, skrifaði minn- ingargrein um hann í blað sitt dag- inn fyrir jarðarförina. Þar minntist hann á það, að Herbie hefði sagt honum, að hann óttaðist, að enginn mundi fylgja sér til grafar. Flestum viðskiptamanna Herbie í Northside- hverfinu var enn ókunnugt um and- lát hans, er þeir lásu greinina. Þetta kvöld hugsuðu og töluðu margir fullorðnir og margir ungl- ingar í hverfinu um Herbie. Þeir skynjuðu skyndilega einmanaleika hans, er þeim varð hugsað til þess tíma á ævi sinni, þegar þeir höfðu verið einmana. Þeir voru snortnir af kvíða hans um, að enginn kæmi til þess að kveðja hann hinzta sinni. Og því ákváðu margir að fylgja honum til grafar, jafnvel þótt eng- inn annar yrði þar viðstaddur. Bílasali einn, sem hafði fengið hjartaáfall fyrir skömmu, minntist þess, þegar bíllinn hans hafði festst í snjónum á akstígnum fyrir fram- an bílskúrinn. Læknirinn hafði harðbannað honum að moka. Skyndilega birtist Herbie og mok- aði burt snjónum fyrir hann. Bíla- salinn sagði við konuna sína: „Ég ætla að fylgja honum Herbie til grafar.“ Hún kinkaði kolli og sagði: „Ég ætla líka að gera það.“ GAMLIR SEM UNGIR, RÍKIR SEM FÁTÆKIR Sumum fannst það persónuleg skylda sín að fylgja Herbie til graf- ar. Eiginmenn lögðu af stað í vinnu á venjulegum tíma og urðu stein- hissa, þegar þeir hittu konur sínar í kirkjugarðinum. Gagnfræða- og menntaskólanemar og háskólastúd- entar skrópuðu í skólanum. Og þeim brá heldur en ekki í brún, þegar þeir sáu svo foreldra sína í kirkju- garðinum. Gamlir sem ungir, ríkir sem fá- tækir, svartir sem hvítir stefndu í áttina til kirkjugarðsins klukkan 9 að morgni, heilum tíma áður en út- förin átti að fara fram. Þar gat að líta minkapelsa, gallabuxur og snjáðar, gamlar kápur. Hermenn og sjóliðar í einkennisbúningi og kaup- sýslumenn í dökkum jakkafötum gengu yfir stóra kirkjugarðinn á Kórónuhæð og stefndu í átt til ný- teknu grafarinnar. Gamalt fólk staulaðist þreytulega en ákveðið áfram. Sumt gekk við staf. Vöru-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.