Úrval - 01.09.1971, Blaðsíða 41
KREFJUMST VIÐ OF MIKILS ...
39
legar og þægilegar kvöldstundir á
heimili sínu; annar aftur á móti vill
heldur sjá fólk og gleðskap í kring-
um sig. Þetta veldur óhják'væmi-
lega misklíð og ósamlyndi. Það eru
úrslitakostir, að makinn viðurkenni
orsakir misklíðarefnanna og hann
gefi eftir, því að það er nauðsyn-
legt að annar hvor láti undan, þeg-
ar tveir menn lifa saman.
Við getum ekki breytt hvort öðru,
ekki skapað hvort annað á nýjan
leik; en við erum færari um að
uppfylla kröfur hvors annars, ef við
reynum í alvöru að skilja hvort
annað. Og það er þess fyllilega vert,
—• af því að það er eina leiðin til
hamingju í hjónabandinu.
Edward Hambro, formaður Allsherjarráðs Sameinuðu þjóðanna er
ákafur andstæðingur reykinga. Sem viðvörunarmerki fyrir þá gesti sína,
sem háðir eru tóbaki, lætiur hann vindlingakassa úr silfri alltaf standa
á skrifborði sínu. En þegar lokið er opnað, blasa ekki vindlingar við
augUm gestanna, heldur tómur kassinn að undanskildum svohljóðandi
prentuðum aðvörunarmiða: „Varúð! Vindlingareykinigar geta verið
iheilsu yðar hættulegar."
Ameriean Symphony Orohestra hafði leikið fyrsta verk sitt á hljóm-
leikum undir stjórn Leopold Stokowski. Hinn mikli hljómsveitarstjóri
stóð nú á pallinum með sprotann á lofti til merkis um, að nú hæfi
hljómsveitin að leika fyrstu tóna næsta verks. En margt fólk var ekki
enn komið í sæti sín og gekk erfiðlega að finna þau. Það flæktist fram
og aftur um gangana, kvartaði yfir iélegri frammistöðu sætavísanna
og ávítaði þær.
Hiljómsveitarstjórinn beið. Að næstum fimm imínútum liðnum sneri
Stokowski sér að áheyrendum og sagði: „Málari málar myndir sinar á
striga. En hljómlistarmenn mála myndir sinar á þögn. Við leggjum til
'hljómlistina, þið leggið til þögnina."
New York Times.
Jean Drapeau, sem var endurkosinn borgarstjóri i Montreal í Kanada
með geysilegum meirihluta, sagði eitt sinn frá samtali, sem hann átti
við kjósanda einn, sem var ekki alls kostar ánægður og vildi leggja
áherzlu ð, að hann væri sjálfstæður í skoðunum. Borgarstjórinn gaf
'honum þá eftirfarandi ráð. „Ef yður igeðjast að mér, skuluð þér setja
stórt x fyrir framan nafnið mitt. En geðjist yður ekki að mér, skuluð
þér bara setja lítið x f.yrir framan nafnið mitt."
Leonard Lyons.