Úrval - 01.09.1971, Page 55

Úrval - 01.09.1971, Page 55
MARTRÖÐ í LAUREL 53 málmurinn brenndi samt fingur hans. „Nú skulum við flýta okkur burt héðan“! kallaði hann til Chan- dlers með hjálp talstöðvarinnar. Chandler losaði nú um neyðar- hemlana í skiptieimreiðinni og opn- aði alveg fyrir olíugjafann. Hjólin snerust og þeyttu frá sér eldglær- ingum á teinunum, en ekkert hreyfð ist. Litla eimreiðin gat ekki mjak- að þeim ofboðslega þunga, sem hún hafði nú í eftirdragi. „Ég get ekki hreyft vagnana", tilkynnti Chandler Wells í talstöð sinni. „Þú ættir að hraða þér burt sem fyrst“. „Ég ætla að hlaupa meðfram vagnaröðinni og rjúfa tengslin nær eimreiðinni, svo að þunginn verði ekki eins mikill“, svaraði Wells. Hann hljóp meðfram teinunum, þangað til hann var kominn að miðri vagnaruninni. Og þar rauf hann tengslin á milli vagnanna. Þá loks byrjaði eimreiðin að mjakast áfram. Og með hjálp hennar voru vagnarnir dregnir inn á hliðarspor tveim mílum sunnar. Síðan fóru þeir aðra ferð í litlu eimreiðinni að vögnunum, sem eftir voru á sporinu. Og þeim tókst líka að bjarga þeim 34 vögnum, sem eftir voru. Nú var aðeins einn geymis- vagn með propanegasi eftir á tein- unum við slysstaðinn. Það var sá, sem var næstur eldhafinu. Chandl- er sagði: „Við skulum reyna að ná honum líka“. Þeir óku eimreiðinni aftur alveg að eldhafinu. Þeir áttu aðeins eftir eina vagnlengd að vagninum. Geymarnir, sem lágu utan við tein- ana, spýttu brennandi gasinu að þeim eins og eldvörpur. „Ég mun aldrei geta skilið, hvers vegna þessi geymir sprakk ekki í loft upp“, segir Chandler. Lokan í enda loft- rörs vagnsins var brunnin af, og það var því ekki hægt að loka fyrir og losa þannig um neyðar- hemlana. Þeir Chandler og Wells tengdu eimreiðina við vagninn og létu hana samt draga vagninn, þó að neyðarhemlarnir væru á. Það var eins og að draga 100 tonna sleða, en samt tókst litlu eimreið- inni þetta. ÆGILEGT TJÓN Þegar komið var næstum fram undir hádegi logaði enn í geymis- vögnunum 15 með propanegasinu, sem oltið höfðu út af teinunum. Einnig logaði þá enn í húsum og öðrum byggingum við margar göt- ur þar í grenndinni. Þrír höfðu dá- ið, og margir höfðu verið lagðir í sjúkrahús. Næstum hundrað íbúð- arhús og aðrar byggingar höfðu eyðilagzt algerlega í eldinum eða skemmzt mikið. Eignatjón var met- ið á 7% milljón dollara. Og það var lýst yfir neyðarástandi í Laur- el. En aðalhættan var samt liðin hjá. Tekizt hafði að fjarlægja geymisvagnana 11, sem eftir höfðu orðið á teinunum, en þeir voru fullir af propanegasi. Og ekki var það síður mikilvægt, að geymis- vagninn með vatnsefniscyanidegas- inu var nú á hliðarspori í fimm mílna fjarlægð frá eldhafinu. Vegna síns stórkostlega snarræð- is og hugrekkis fengu þeir Chandl- er og Wells báðir Carnegieverð- launin fyrir árið 1970, en það er
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.