Úrval - 01.09.1971, Page 93

Úrval - 01.09.1971, Page 93
EKKI SIGURINN HELDUR BARÁTTAN 91 lega í föður stao. Hann útvegaði mér herbergi. Hann tók þátt í áhyggjum mínum og vandamálum, spurði mig um skólanámið, og hann hafði trú á mér. ,,Þú getur gert þetta, og þú getur líka gert þetta,“ sagði hann við mig á æfingunum. Og ég trúði orðum hans. Norður í Oregonfylki hafði ég æft í eina klukkustund á dag. En samkeppnin var harðari suður í Kaliforníu og harkan því meiri í æfingunum. Við komum til sund- laugarinnar klukkan 6.30 að morgni, og George skipaði mér að synda fyrst 500 metra, svona rétt til þess að „hita mig upp“. Hann labbaði fram og aftur á laugarbarminum með hljóðnema í hendi. 500 metrar eru míluþriðjungur. Svo syntum við aðra 500 metra og notuðum þá að- eins handleggina, en hreyfðum ekki fæturna. Næst syntum við hvern 50 metra sprettinn á fætur öðrum. Fyrst syntum við 50 metra, stönz- uðum svo og litum á klukkuna á veggnum til þess að mæla tímann. Síðan syntum við aðra 50 metra og tókum aftur tímann. Við syntum samtals 10 slíka spretti. Þetta er kölluð „hiéþjálfun", þ. e. þjálfun með hléum á milli. Slík þjálfun gerir manni fært að þroska með sér hraðaskyn, sem er eins konar inn- byggður hraðamælir. Án slíks skyns getur maður ekki verið viss um sundhraða sinn eða hvers konar keppnisaðferð er bezt að beita hveriu sinni í hörðum képpnum. Síðan syntum við aðra 500 metra og notuðum þá aðeins fæturna, en héldum í plastplötu. Síðan komu 100 metra sprettir líklega fimm tals- ins. Síðan kom enn annar langur sundsprettur, fleiri stuttir sund- sprettir, æfingar í öndun, æfingar í að snúa sér í laugarenda og æfingar í að hefja sund í keppni. Síðan kom enn annar langur sundsprettur. Og þá loks var morgunæfingunum lok- ið. Og síðdegis byrjuðu æfingarnar svo aftur. Þegar æfingarnar voru sem erfiðastar, syntum við um 8 milna vegalengd á dag. Þrem mánuðum eftir 'að ég flutti til Santa Clara, tók ég þátt í vor- landsmeistaramótinu, sem haldið er í lok vetrartímabilsins og er há- mark þess. Og öllum til mikiilar undrunar komst ég í úrslit í 200 yarda sundi með frjálsri aðferð og varð sá þriðji í lokakeppninni. Næsta kvöld var svo keppt í 440 yarda sundi með frjálsri aðferð. Og þá varð ég líka sá þriðji. Nú gerði ég mér í fyrsta skipti grein fyrir því, að ég hafði góða möguleika á að komast í keppnis- liðið, sem sent yrði á Olympíuleik- ana árið 1964. Ég þurfti aðeins að verða fjórði hraðasti sundgarpur Bandaríkjanna í 200 metra sundi til þess að komast að minnsta kosti í boðsundsliðið.Og núna, árið 1962, var ég þegar orðinn sá þriðji hrað- asti. Ég skrapp heim í júní og dvaldi þar í viku, og svo dvaldi ég heima aðra viku í lok sumarsins. En eftir það fór ég í rauninni aldrei heim aftur. Ég varð kyrr í Santa Clara og æfði af kappi. Þetta átti eftir að verða aðalinntak lífs míns lengi vel.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.