Úrval - 01.12.1973, Side 15
SJO „FURÐUVERK“ VERALDAR
13
annar, eftirmaður hans, leit öðrum
augum á málið. Eftir að hafa virt
fyrir sér álit og teikningar verk-
fræðinga sinna lét hann uppi þá
skoðun sína, að slík áætlun væri
„í andstöðu við vilja hins Heilaga“.
Þrem öldum síðar var Frakkan-
um Ferdinand de Lesseps, sem stað
ið hafði fyrir greftri Súes-skurðar-
ins, falið að sjá um gerð Panama-
skurðarins. Fé var safnað til verks-'
ins, en loks varð félagið gjaldþrota.
Annað félag var þá stofnað á rúst-
um hins fyrra, en það fór á sömu
leið og seldi þá Bandaríkjamönn-
um verk sín og eigur fyrir 40 millj-
ónir dala.
Verkið var hafið, og var Teddy
Roosevelt, Bandaríkjaforseti, þess
mjög hvetjandi. En aldrei í sögunni
hafði stórvirki mætt öðrum eins
örðugleikum. í ljós kom, að land-
svæðið umhverfis væntanlegan
skurð, var argasta pestarbæli. Land
lægir voru þarna sjúkdómar eins
og kólera og malaría, og skordýra-
plágan jók á óhugnaðinn. Þá var
landið sjálft hið viðsjárverðasta:
mannskæð kviksyndi, miklir sjáv-
arstraumar vegna sjávarfalla, svo
eigi sé minnzt á jarðskjálfta og
skriðuföll, sem gátu borið fram tvö
milljón rúmfet af jarðefni í einu
lagi og grafið undir sér hús og
önnur mannvirki, sem gat tekið
vikur að koma í samt horf á ný.
En þrátt fyri(r himingnæfandi
örðugleika var verkinu fulllokið ár-
ið 1914, — og var skurðurinn það
vel gerður, að hann þjónar hlut-
verki sínu eins vel í dag og hann
gerði í byrjun, og hafa þó mjög
litlar breytingar verið á honum
gerðar.
Það var heimsfrétt, þegar Pan-
ama-skurðurinn var tekinn í notk-
un, og til dæmis sagði eitt blaðið:
„Hér er um að ræða eitthvert mesta
verklegt afrek allra tíma og stór-
kostleg blessun til handa öllu mann'
kyni.“
EMPIRE-STATE-BYGGINGIN
Sjálfsagt munu ekki allir sætta
sig við, að þessi stórfenglega bygg-
ing í New York skuli vera tekin
með á lista yfir sjö mestu furðu-
verk heims. Sumir eru andvígir
öllu, sem hátt trjónar. Raunar er
það ekki hæðin ein, sem gefur hús-
inu mest gildi, þótt hæðirnar séu
102, enda eru hærri skýjakljúfar
komnir til sögunnar.
En í hugum fjölmargra þeirra
1,5 milljón ferðalanga, sem árlega
heimsækja Empire State með öll-
um þeim vistarverum sem þar leyn
ast, mun byggingin geymast sem
ókrýnd drottning skýjakljúfanna.
Athugum nokkrar staðreyndir.
Húsið getur skoðast borg innan
borgarinnar. Þar er til reiðu hvers
konar þjónusta til handa því starfs
fólki, 16 þúsund manns, sem í hús-
inu vinnur. En fyrirtækin, sem
þarna starfa eru að sjálfsögðu hin
fjölbreytilegustu, eins og bankar,
fasteignasölur, veitingastaðir, hvers
konar verzlanir og ferðaskrifstofur.
Til að auðvelda starfsfólki og
gestum ferðir um húsið eru í því
73 hraðfara lyftur og fjórir hreyfi-
stigar á neðri hæðunum. Talsímar
eru 18 þúsund og símalínurnar eru
3500 mílur að lengd. Aðrar 2,5