Úrval - 01.12.1973, Síða 38
36
1680 kr) fyrir að mega fara burt
með stúlku. Stúlkan gat svo fengið
sem sína þóknun það sem hún setti
upp fyrir kvöldið, t. d. 50—100 dali
(4—10 þúsund krónur).
Mikill hluti af milljónafram-
leiðslunni á klámmyndum í Banda-
ríkjunum er nú beinlínis í höndum
Mafíunnar. Meðan ég var í þessum
„bransa“, skipti ég við filmufram-
leiðendur í New York Mafíunni,
undir forystu Salvatore Manarite.
Framleiðendur kvikmyndanna,
sem unnu fyrir Manarite, notuðu
skrifstofur og mótelherbergi við
framleiðslu á endalausum straumi
kvikmynda af þessu tagi, þar sem
sýndar voru samfarir, hópsamfarir,
eða stóðlíf, og sadistískar aðferðir.
Beztu útgáfur myndanna voru
framleiddar í sérstöku húsnæði í
stórverzlun við La Gardia flugvöll
í New York.
Þar voru gerðar litkvikmyndir,
ein slík viku hverja, og hafði for-
ystu um það kvikmyndatökumaður
einn. „Leikarar“ og „leikkonur" í
þessum myndum voru valin úr hópi
eiturlyfjaneytenda og venjulega
þvinguð til þátttöku, til að sýna
sig, með loforðum frá Mafíunni um
heróín að launum þó.
í einu tilviki var mér boðið að
vera við morgunupptöku.
Við enda gangsins, bak við hurð-
ina á upptökuherberginu, sem var
merkt C, var stjórnandi að útskýra
einfalt atriði fyrir 16 ára gamalli
stúlku og á að gizka tvítugum síð-
hærðum piltum. Þegar ljós vélar-
innar leiftruðu, hófst strípileikur-
inn á þar til gerðum palli. Þetta
IJRVAL
fólk hafði verið ráðið til að leika
hópatriði í þetta skiptið.
Innan klukkustundar var 12 mín
útna kvikmynd tilbúin, og tækni-
menn tilbúnir með eintök til dreif-
ingar í búðir Mafíunnar um alla
borgina og raunar allt landið.
Vegna strangs eftirlits í póstin-
um forðast framleiðendur venju-
lega póstsendingar. Dreifing fer því
oft fram með sérstökum flutninga-
bílum í ómerktum pökkum, í blóra
við lög. Samkvæmt lögum er lög-
reglan skyldug til að vita með
vissu, að ólöglegt efni sé í blaða-
pökkum, áður en hún leggur hald
á þá. Sé klám flutt milli ríkja í
Bandaríkjunum, getur það varðað
allt að tíu ára fangelsi.
MÚTUR OG ÁHRIF
Séð er gegnum fingur við alla
þessa tilburði Mafíunnar í klám-
verzluninni. Lögreglan gerir það,
vegna þess að lögreglumönnum er
mútað og lögregluforingjar fá ærna
þóknun, eiginlegan skatt, frá Mafí-
unni.
f Baltimore hef ég persónulega
úthlutað þúsundum dala (hundr-
uðum þúsunda króna) til lögregl-
unnar í hverjum mánuði til að
tryggja sölu klámrita og -bóka og
ekki síður til þess að sóðalegu
drykkjusvalli og striplingasýning-
um í klúbbum og krám verði ekki
andæft. Tíu dollarar (um 840 kr.)
voru að meðaltali mánaðarlegar
tekjur, það er skattur, hvers lög-
reglumanns, á hverju svæði, af
þessu.
Spilling þessi er svo útbreidd, að
einn félaga minna fullyrti, að hann