Úrval - 01.10.1978, Page 3

Úrval - 01.10.1978, Page 3
37. ár Úrval Október 1978 Með þessu hefti verða þáttaskil í útgáfu Úrvals. Við höggvum á hnútinn. Ritið hefur lengi verið langt á eftir áætlun. Orsakir til þess höfum við skýrt oftar en einu sinni. Nú segjum við stopp og kippum Úrvali inn í réttan gang. Askrifendum, sem ef til vill óttast að þar með verði þeir sviknir um það, sem þeir hafa greitt fyrir, er óhætt að anda léttar. Þeir verða ekki hlunnfarnir, heldur séð til þess, að þeir fái þann fjölda hefta, sem þeim var lofað. Hitt hlýtur að verða þeim bragarbót líka, að fá nú heftin heim til sín á réttum tíma. Þeim þökkum við langlundargeðið undanfarna mánuði. Sagan af Karen Ann Quinlan, sem birtist sem bókarútdráttur í þessu hefti hefur alls staðar vakið mikla athygli og sums staðar deilur. En það er fróðlegt að kynnast málinu frá sjónarhóli þess fólks, sem hratt umtalinu af stað: For- eldrum Karenar. Skömmu eftir að þýðing sú, sem hér birtist, var farin í setn- ingu, sýndi sjónvarpið kvikmynd, sem byggð er á sögunni, en það er skoðun undirritaðs, að sú kvikmynd hafi ekki gefið eins góða lýsingu á fólki og atburð- um, eins og fámáút úr bókinni. Af öðm efni má meðal annars benda á grein um Hvalfjörð og umhverfi hans, eftir mann sem hefur alið allan sinn aldur við þennan fagra fjörð, grein um reykskynjara, sem sannarlega er ekki vanþörf á að kynna nánar hér hjá okk- ur en gert hefur verið til þessa — og raunar margt fleira. En kannski þykir rit- stjórn Úrvals einna fróðlegast að frétta hvernig menn bregðast við nýyrði, sem kynnt er í grein, er ber heitið Mópeðin em merkileg fyrirbrigði. Nýyrðið er kynnt nánar með greininni sjálfri, en á þessum vettvangi em lesendur hvattir til að láta álit sitt í ljósi — og kannski er það greinilegast gert með því að nota orðið í daglegu tali — eða láta það vera. Svo óskum við lesendum góðrar skemmtunar. Ritstjóri. Kápan: Á þessu sumri var mikið tjaldað víða um landið. Þessi mynd er frá Skaftafelli í Öræfum, vinsælum ferðamannastað álslandi. Ljósm. Jón Karl Snorrason.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.