Úrval - 01.10.1978, Page 7

Úrval - 01.10.1978, Page 7
MAÐURINNSEM FÆRÐI GRIKKLANDILÝÐRÆÐID AFTUR 5 og tróð fangelsin út með pólitískum föngum. Hann ríkti í sex og hálft ár, en var þá steypt af stóli af öðrum her- foringja. VONT VERRA Sá sem tók við af Papadopoulosi var Dimitrios Ioannides, álkulegur maður, sem var yfírmaður herlögregl- unnar. Ioannides notaði 20 þúsund manna herlögreglulið sitt til þess að koma á ógnarstjórn, og pyndingar pólitískra fanga, sem hafíst höfðu í stjórnartíð Papadopoulosar, jukust ískyggilega. Ioannides einvaldur kynni að vera við stjórnvölinn enn þann dag I dag, hefði honum ekki orðið afskaplega á í messunni. í júlí 1974 skipulagði hann valdarán gagnvart Makaríosi sáluga erkibiskupi, forseta lýðveldisins á Kýpur. Nærri 80% kýpurbúa eru af grískum uppruna, og Ioannides von- aði að þegar erkibiskupnum hefði verið rutt úr vegi, myndu Kýpur og Grikkland verða eitt. En tyrkir, sem höfðu áhyggjur af því að nú yrðu hin- ir aðþrengdu tyrkir á Kýpur hart leiknir, gerðu innrás á eyna og náðu að lokum undir sig 40 hundraðshlut- um hennar. Auðmýktur yfír því hvernig ævin- týrið hafði komið niður á honum sjálf um, hvatti Ioannides nú til stríðs við tyrkjann. En aðrir herforingjar, sem sáu í hendi sér að tyrkneski herinn var þrefalt sterkari en sá gríski, komu í veg fyrir það, og einræði Ioannidesar hrundi af sjálfu sér. Herforingjarnir sendu neyðarskeyti til eina mannsins sem þeim fannst að gæti tjónkað við þjóðina. Og klukkan tvö aðfaranótt 24. júlí lenti Karaman- lis í Aþenu. Þótt nótt væri, stóðu þús- undir fagnandi manna meðfram göt- unum og vörpuðu blómum fyrir bíl- inn hans. Klukkan fjögur sór hann embættiseið sem forsætisráðherra. Hann ávarpaði fjöldann af svölum við Stjórnarskrártorgið (Syntagma) og sagði: ,,Ég er hjá ykkur. Lýðræðið er hjáykkur.” Fyrsta daginn í ráðherrastóli að nýju lét Karamanlis lausa alla póli- ríska fanga. Sumir höfðu setið í haldi árum saman. Hann kom á ný á rit- frelsi, málfrelsi og öðrum mannrétt- indum. En nýi forsætisráðherrann neyddist til að halda uppi stórhættu- legum ,,köttur-og-mús”-leik, því Aþena var umkringd skriðdrekasveit- um, undir stjórn liðsforingja, sem enn voru ofstækislega trúir Ioann- idesi. En Karamanlis lét engan bilbug á sér fínna, heldur tók yfírstjórn hers- ins í sínar hendur. Daglega að kalla voru einn eða fleiri fylgjenda Ioann- idesar leystir frá lykilstöðum og sendir til farlægra staða ,,til að vernda þjóð- inafyrir tyrkjum.” ÖGRUN Þegar Karamanlis þótti tími til kominn að láta endanlega til skarar skríða, efndi Karamanlis til fundar við hershöfðingjana. ,,Ég get ekki stjórnað undir stöðugum ótta um valdarán,” sagði hann. ,,Ég vil að all-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.