Úrval - 01.10.1978, Side 27

Úrval - 01.10.1978, Side 27
CHAPLIN 25 Chaþlin litaðist um í búningsher- bergjunum: Fatty Arbuckle hafði skilið eftir gríðarstórar buxur, hangandi á stól- baki. Chaplin, sem var fremur lágur og mjög grannur, stakk sér í þær og batt þær upp um sig með snæri. Rétt þar hjá hékk allt of lítill jakki á snaga. Chaplin fór í hann að ofan og setti á sig kúluhatt, sem líka var alltof lítill. Því næst kom faiskt yfirskegg, hag- rætt þannig að það var hægt að iða því á efri vörinni. Loks komu skórnir, með tærnar sveigðar upp á við og svo stórir, að engin leið var að hemja þá á sér nema á krummafæti. Joe Pollack. Chaplin bœtir við í sjálfævisögu sinni: Eg hafði enga hugmynd um, hvers konar persónu ég var að leita að. En um leið og ég var kominn í þessa múnderingu og hafði fengið andlits- förðun fann ég, hvernig þessi maður var. Ég fór að skýra þetta út fyrir Sennett. ,,Þetta er fjölhæfur náungi — hann er flækingur, séntilmaður, skáld, dreymandi, einmana maður, sem alltaf dreymir um rómantík og ævintýri. Hann vill láta þig halda, að hann sé vísindamaður, tónlistarmað- ur, hertogi, póloleikari. Samt vílar hann ekki fyrir sér að hirða sígarettu- stubba upp af götu sinni eða hrifsa brjóstsykur af barni. Og ef henta þyk- ir á hann líka til að sparka í rassinn á dömu — en bara ef hann er illa reið- ur!” Mean ég lét móðan mása, fór Sennett að hlæja, svo hann nötraði allur. Hann sagði mér að fara upp á svið og sjá hvað ég gæti fengið út úr því. Ég gekk inn í stúdíóið og hrasaði á leiðinni um fót á konu. Ég sneri mér við og lyfti hattinum afsakandi, hélt svo áfram, datt um spýtubakka, sneri mér við aftur og lyfti líka hattinum fyrir honum. Myndatökumennirnir fóru að hlæja bak við vélarnar. Ég vissi, að ég hafði fundið rétta tóninn. Chaplin flækingur, sem sýnd var 1915, er talin fyrsta klassíska kvik- myndin hans. Hún er ennþá ein merkasta myndin hans, fyrsta mynd- in með þeim átakanlega undirtón, sem ersvo mikilvœgur í flestum síðari myndum hans. Þar að auki vogaði hann sér að láta þessa ærslamynd enda sorglega, en það var alveg fá- heyrt á þeim tíma. I gervi flækingsins bjargar Chaplin stúlku frá rœningja. I launaskyni fœr hann starf á búgarði föður hennar. Glæpamennirnir snúa aftur til að ræna óðalseigandanum. Charlie stökkvir þeim á flótta, en fær skot í fótinn. Meðan stúlkan gætir hans og hjúkrar honum, er hann í sjöunda himni, eða þar til hinn glæsilegi unn- ustu hennar skýtur upp kollionum. Þá gerist hann dapur, tekur litla pinkilinn sinn og heldur áfram flæk- ingnum. I lokaatriðunum sjáum við hann snúa baki við myndavélinni og dragast þunglamalega út eftir þjóð-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.