Læknaneminn - 01.04.2020, Side 6

Læknaneminn - 01.04.2020, Side 6
6 Á vö rp o g an ná la r 6 Sólveig Bjarnadóttir Formaður Félags læknanema 2019-2020 Síðasta skólaár var í senn viðburðaríkt og fullt af áskorunum. Stjórn FL hefur haft mikið fyrir stafni og margt hefur unnist en árið litaðist jafnframt af alvarlegu rútuslysi sem lækna nemar lentu í á leið í skíðaferð í janúar síðast liðnum. Efst í huga er þakklæti til allra þeirra góðu aðila sem veittu okkur stuðning á þessum erfiðu tímum. Viðbragðsaðilar á Blöndu ósi og Skagaströnd tóku á móti okkur með hlýju og alúð eftir slysið, Rauði krossinn veitti áfallahjálp og Læknadeild hefur staðið þétt við bakið á okkur. Oft hefur verið haft orð á að læknanemar séu samheldinn hópur en sú samheldni og kærleikur hafa sjaldan verið jafn sterk og eftir þetta hörmulega slys. Heimsfaraldur COVID-19 setti einnig strik í reikninginn. Veiran breiddist hratt út á vor- mánuðum og setti samfélagið allt á hliðina. Heill bekkur læknanema lenti í sóttkví og með samkomubanni 16. mars var öll hefðbundin kennsla í Háskóla Íslands lögð niður. Engin árshátíð, engar vísindaferðir og tilmæli um 2 metra fjarlægð. Þetta voru fordæmalausar aðstæður sem settu læknanema í flókna stöðu. Rafrænir kennslu hættir voru teknir upp á einni helgi og breyta þurfti náms mati í öllum áföngum. Læknadeild vann hart að því að aðlaga verknám svo unnt væri að halda því áfram og allir lögðust á eitt við að leita lausna. Þegar upp er staðið eiga nemendur og kennarar mikið hrós skilið fyrir sveigjanleika og jákvæðni við þessar aðstæður. Af öðrum málum þessa skólaárs ber fyrst að nefna baráttu FL um aðild að Læknafélagi Íslands (LÍ). Haustið 2019 var samþykkt ályktunar tillaga á aðalfundi LÍ um skipan starfshóps til að kanna aðild læknanema að LÍ. Sú vinna hefur farið hægt af stað og skipan starfshópsins tafðist enn frekar vegna COVID-19. Forsaga þessa máls er sú að klínískir læknanemar sem starfa í afleysingum á Landspítala og öðrum heilbrigðisstofnunum fá greitt samkvæmt kjarasamningi LÍ án þess að eiga aðild að félaginu. Þessir nemar hafa þannig staðið utan stéttarfélags sem er óforsvaranlegt. Brýnt er að efla stéttarvitund og samstöðu meðal lækna og í því samhengi er mikilvægt að lækna nemar séu velkomnir enda erum við framtíðarkollegar. Nær tvöföld hækkun á miðaverði fyrir læknanema á Læknadaga 2020 sætti þannig furðu og sendi neikvæð skilaboð. Það er mikilvægt að okkar rödd heyrist og því afar jákvætt hvað læknanemar hafa verið sýnilegir á mörgum sviðum. Margir hafa vakið athygli fyrir rannsóknir og vísindastörf. Má þar nefna að af tæplega fimmtungi fræðigreina í Læknablaðinu árið 2019 var fyrsti höfundur lækna nemi og enn fleiri voru meðhöfundar. Auk þess hefur stjórn FL skrifað pistla í Lækna blaðið um mál sem okkur varða og þannig verið með í umræðunni. Stjórn FL hefur einnig barist fyrir aðgangi klínískra læknanema að Lyfjagagnagrunni Landlæknis. Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp til nýrra lyfjalaga og höfum við sent frá okkur umsagnir um frumvarpið og mætt á fund Velferðarnefndar Alþingis. Það er mikil vægt að læknanemar á 4.-6. ári sem eru í verk námi eða starfa í afleysingum geti nálgast upp- lýsingar um lyfjasögu sjúklings enda eykur það öryggi og gæði í meðferð. Á vordögum fundaði stjórn FL með Páli Matthíassyni forstjóra Landspítala og Ólafi Baldurssyni framkvæmdastjóra lækninga. Þar var rætt um aðstöðuleysi læknanema á Land spítala í Fossvogi en þar er hvergi afdrep eða lesaðstaða fyrir læknanema og búnings- aðstöðu er ábótavant. Farið var yfir móttöku og aðlögun læknanema sem hefja störf á Land- spítala og funduðum við jafnframt með þeim aðilum sem sáu um ráðningar. Margt er enn óljóst varðandi kjör og réttindi læknanema í starfi og höfum við lagt mikla vinnu í að Annáll Félags læknanema
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.