Læknaneminn - 01.04.2020, Blaðsíða 70
Fr
óð
le
ik
ur
70
Arna Kristín Andrésdóttir
Fimmta árs læknanemi 2019-2020
Rósa Harðardóttir
Fimmta árs læknanemi 2019-2020
Af hverju var ákveðið að
ráðast í breytingar á matsölum
Landspítalans?
Gerð var starfskönnun árið 2017 sem var
upphafið að því sem kallast ELMU verkefnið.
Í könnuninni kom fram að fólk var orðið þreytt
á þáverandi fyrirkomulagi: Fá skammtað á
diskinn sinn, að hafa salatbarinn sér og geta
ekki fengið sér salatbar til helmings við heitan
mat. Einnig vildi fólk fá matmeiri súpur.
Fjárveiting frá Landspítalanum kom í lok
árs 2018 til að taka matsalinn í gegn. Ástæða
fjár veitingarinnar var að reyna að auka starfs-
ánægju og gera eitthvað fyrir starfs fólk, enda
var algjörlega kominn tími til þess. Vegna
fjölda kvartana í gegnum tíðina hafði skapast
mikill hvati til þess að fara út í sjálfsskömmtun
og bæta þjónustu, aðgengi og matinn.
Fyrsti salurinn sem var tekinn í gegn var á
Grensás. Skaftahlíð opnaði síðasta sumar
(2019) og því næst Fossvogur og Hringbraut.
„Núna erum við nýkomin með fjárveitingu til
að gera alla hina salina. Við erum að reka 11
staði í heildina sem eru misstórir og þjónustan
því mismunandi milli staða.“ segja Sigrún
og Eygló.
Hvaða breytingar hafa verið
gerðar?
Fyrst má nefna sjálfsafgreiðslulínuna og
greiðslu eftir vigt. Opnun kaffihúsanna
bætti svo miklu við vöruúrvalið. Auk þess
hefur aðkoman og útlitið á matsölunum
breyst þó enn sé mikið eftir á því sviði.
Verið er að vinna með ákveðna hugmynd
sem Halla Haraldsdóttir Hamar, arkitekt
Landspítalans, hefur yfirumsjón með. Til
dæmis er hugmyndin að hafa háborð, lágborð
og hringborð og þannig leyfa fólki að velja
hvernig stemmingu það vill hafa.
Hvaða sjónarmið voru í
forgrunni við breytingarnar?
Við breytingarnar var stuðst við niðurstöður
úr starfskönnuninni sem var gerð 2017.
Í henni komu fram ýmsar ástæður fyrir því að
fólk borðaði ekki í matsalnum t.d. fyrirfram
ákveðin sætaskipan, birtustig og hávaði. Enn
er verið að vinna að þeim þáttum. Miðað er
við að stemmingin í matsölunum verði eins og
í Skaftahlíð en þar langar þig að setjast niður
og borða matinn þinn. Markmiðið er svo að
gera sambærilega könnun og 2017 til að meta
hvort ánægja með matsalina hafi aukist.
Breytingar til hins betra
Endurbættir matsalir Landspítala og Læknagarðs
Undanfarin misseri hafa miklar breytingar átt sér stað á matsölum Landspítala og Læknagarðs.
Breytingarnar snúast að miklu leyti um aukið úrval, minni matarsóun og grænni kost. Við vildum
fræðast betur um þessar breytingar og settumst því niður með Sigrúnu Hallgrímsdóttur deildarstjóra
og Eygló Hlín Stefánsdóttur verkefnastjóra hjá ELMU á Landspítalanum og Hafdísi Haraldsdóttur í
Læknagarði.