Læknaneminn - 01.04.2020, Blaðsíða 125

Læknaneminn - 01.04.2020, Blaðsíða 125
R a n n s ó kn a rv e rk e fn i þ ri ð ja á rs n e m a 12 5 losi fóstrið barnabik í legvatn og ásvelging verði í kjölfarið. Í alvarlegum tilvikum getur sjúkdómurinn haft í för með sér öndunarbilun, lungnaháþrýsting og jafnvel dauða. Sjúkdómurinn kemur einkum fyrir í fullburða börnum og eru tengsl hans við lengda meðgöngu þekkt. Rannsóknir hafa bent til tengsla HBBÁ við súrefnisþurrð í móðurkviði. Talið er að langvarandi súrefnisþurrð fyrir fæðingu geti valdið þykknun á vöðvalagi lungnaslagæða sem geti stuðlað að lungnaháþrýstingi eftir fæðingu. Tilgangur rannsóknarinnar er að varpa ljósi á faraldsfræði HBBA hér á landi síðustu áratugi auk þess að meta hvernig alvarleiki, meðferð og dánartíðni vegna HBBÁ hefur breyst á rannsóknartímabilinu. Einnig að kanna tengsl sjúkdómsins og merkja um súrefnisþurrð í móðurkviði. Efniviður og aðferðir: Afturskyggn, lýsandi rann- sókn, að hluta til tilfella-viðmiðarannsókn yfir 42 ára tímabil (1977-2018). Í tilfellahóp voru þau fullburða börn sem fengu greininguna barnabiksásvelging á tímabilinu. Sem viðmið voru valin fjögur fullburða börn sem lögðust inn á Vökudeild næst fyrir og eftir hvert tilfelli. Klínískum upplýsingum var safnað úr Vökudeildarskrá og sjúkraskrám. Vefjasýni voru fengin frá meinafræðideild Landspítalans. Samanburður var gerður á helstu klínísku breytum milli tilfella- og viðmiðahóps, auk fyrri og seinni helminga rannsóknartímabils innan tilfellahóps. Fjölþáttagreining var gerð á hugsanlegum áhættu- og forspárþáttum sjúkdómsins. Niðurstöður: 274 fullburða börn greindust með HBBÁ á tímabilinu. Nýgengi á öllu tímabilinu var 1,5 á hver 1000 lifandi fædd börn, en árin 2005-2018 var það 0,8. Dánartíðni var 3,3% en ekkert dauðsfall varð eftir 1993. Tíðni helstu meðferðarþátta hjá sjúklingahópi jókst á seinni hluta rannsóknartímabilsins. Meðgöngulengd ≥40 vikur, kvenkyn og Apgar <7 við 5 mín. voru meðal áhættu- og forspárþátta um sjúkdóminn. Fjöldi kyrndra rauðra blóðkorna hjá börnum sem fengu HBBÁ og þurftu öndunarvélameðferð var hærri en hjá viðmiðahópi. Vöðvalag barna sem létust úr HBBÁ (n=5) mældist þykkara en hjá samanburðarhópi. Ályktanir: Lækkun á nýgengi HBBÁ hér á landi síðustu 15 ár er í samræmi við erlendar rannsóknir, en þar hefur hún verið rakin til bættrar fæðingarhjálpar og fyrri framköllun fæðinga. Tilkoma hátíðniöndunarvélameðferðar (1994) og meðferðar með innönduðu nituroxíði (iNO, 1996) hafa líklega bætt lífslíkur barna með HBBÁ. Niðurstöður um áhættuþætti fyrir HBBÁ eru í samræmi við erlendar rannsóknir, en að stúlkur séu líklegri til að greinast með HBBÁ kemur á óvart. Lágur Apgar og aukinn fjöldi kyrndra rauðra blóðkorna hjá börnum með HBBÁ auk þykkara vöðvalags í lungnaslagæðum barna sem létust með HBBÁ styðja að súrefnisskortur fyrir og í fæðingu sé mikilvægur þáttur í tilurð og alvarleika sjúkdómsins. Endurkomutíðni, meðferð og horfur sjúklinga með krabbamein á höfði og hálsi á Íslandi 2009-2016 Edda Rún Gunnarsdóttir1, Helgi Birgisson3, Anna Margrét Jónsdóttir2, Geir Tryggvason1,2 1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Landspítali háskólasjúkrahús, 3Krabbameinsskrá Íslands Inngangur: Krabbamein á höfði og hálsi er samheiti yfir illkynja mein sem greinast í efri öndunar- og meltingarfærum. Fjöldi þeirra er að aukast um allan heim en þau eru 4,6% allra krabbameina. Markmið rannsóknarinnar var að meta nýgengi, endurkomutíðni og horfur krabbameina á höfði og hálsi á Íslandi á árunum 2009-2016 og skoða meðferðarákvarðanir með tilliti til staðsetningar þeirra. Efniviður og aðferðir: Skoðaðir voru einstaklingar sem greindust með krabbamein á höfði og hálsi á Íslandi á árunum 2009-2016. Krabbameinsskrá útvegaði lista yfir kennitölur þessara einstaklinga og upplýsingar um greiningu, stigun, meðferð og endurkomu fengust úr sjúkraskrám þeirra. Upplýsingarnar voru skráðar á 4 mismunandi skráningarblöð byggð upp að fyrirmynd sænska INCA skráningarkerfisins og unnið var úr þeim við gerð rannsóknarinnar. Niðurstöður: Árlegur meðalfjöldi tilfella krabbameina á höfði og hálsi á Íslandi á árunum 2009-2016 var um 30 talsins (8,48/100.000 einstaklinga). Flestar nýgreiningar voru árið 2016, 41 talsins (10,84/100.000 einstaklinga) og fæstar nýgreiningar voru árið 2010, 23 talsins (6,62/100.000 einstak linga). Flestir greindust með krabbamein í munnholi (n=81, 33,9%), annað algengasta krabbameinið var í munnkoki (n=55, 23%) en fæstir greindust með krabbamein í barkakýliskoki (n=5, 2,1%). Algengasta vefjagreiningin var flöguþekjukrabbamein (n=210, 87,9%). Meðalaldur sjúklinga með krabbamein í munnkoki var 62 ár sem er lægri en meðalaldur greindra með krabbamein á öðrum stöðum (67 ár). Meðferð sjúklinga með krabbamein í munnholi eða vör var oftast aðgerð, ein og sér (54,9%) eða með geislameðferð (23,5%), meirihluti sjúklinga með krabbamein í barkakýli fór hins vegar ekki í aðgerð (68%). Geislameðferð var veitt hjá 98,2% munnkokskrabbameina, 80% barkakýliskrabbameina, 39,2% munnhols- og varakrabbameina og 78,1% krabbameina á öðrum stöðum. Fleiri karlmenn fengu geislameðferð (73,6%) og geislameðferð samhliða lyfjameðferð (20,6%) en konur (49,3% og 2,9%). Sjúkdómsendurkoma varð í 36% barkakýliskrabbameina, 48% munnhols- eða varakrabbameina, 21,8% munnkokskrabbameina og 25% krabbameina á öðrum stöðum.Tíðni munnkokskrabbameina er að aukast en mun betri 2 ára lifun er fyrir p16 jákvæð munnkokskrabbamein (87%) en p16 neikvæð munnkokskrabbamein (43%). Ályktanir: Fjöldi krabbameina á höfði og hálsi á Íslandi fer að aukast þrátt fyrir lækkandi tíðni reykinga. Mesta aukningin sést í krabbameinum staðsettum í munnkoki, úr 3 tilfellum árið 2009 í 15 tilfelli árið 2016, sem tengist sennilega aukinni tíðni HPV tengdra krabbameina. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu mikinn mun í meðferð krabbameina á höfði og hálsi milli kynja. Konur fengu sjaldnar geisla- og lyfjameðferð en karlar. Hærri tíðni munnhols- eða varakrabbameina hjá konum gæti til að mynda skýrt þennan mun en einungis að hluta. Ris og hnig nýgengis sortuæxla á Íslandi Eir Andradóttir1, Jón Gunnlaugur Jónasson1,2, Laufey Tryggvadóttir3, Helgi Sigurðsson1,2 1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Landspítali­Háskólasjúkrahús, 3Krabbameinsskrá Íslands Inngangur: Nýgengi sortuæxla hefur aukist mikið á mörgum svæðum í heiminum undanfarna áratugi. Aðal umhverfisorsök húðkrabbameina er útfjólublá geislun. Á Íslandi eru sortuæxli um 3% allra krabba- meina og nýgengið er talsvert hærra hjá konum en körlum. Algengasta vefjagerð meinanna er superficial spreading melanoma (SSM). Sá þáttur sem hefur hvað mest að segja um horfur sjúklinga er Breslow‘s þykkt æxlisins. Nýgengið jókst mikið hérlendis upp úr 1990 og árið 2005 hafði það nær fimmfaldast en féll svo aftur um nærri helming undanfarinn áratug. Dánartíðnin er lág og hefur lítið breyst í gegnum árin. Markmið rannsóknarinnar var að athuga hvaða þættir liggja að baki þessu risi og hnigi í nýgengi sortuæxla á Íslandi. Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er afturskyggn faraldsfræðirannsókn og úrvinnsla byggði á lýsandi tölfræði. Rannsóknarþýðið samanstóð af öllum þeim sem greindust með ífarandi sortuæxli í húð á Íslandi árin 1980-2018 (n=1285) en áhersla var lögð á tilfelli frá árunum 2010-2018. Frá Krabbameinsskrá Íslands fengust upplýsingar um kyn, aldur, búsetu, greiningarár, Breslow‘s þykkt, vefjagerð og staðsetningu æxlis. Þykkt æxla frá árunum 2017- 2018 var fundin í meinafræðisvörum. Niðurstöður: Á tímabilinu 1980-2018 greindust 507 karlar (39%) og 778 konur (61%) með sortuæxli. Aldursstaðlað nýgengi yfir tímabilið 2010- 2018 var 7,6/100.000 hjá körlum og 11,3/100.000 hjá konum. Meðalaldur við greiningu var 62 ár hjá körlum og 54 ár hjá konum. Frá tímabilinu 1980- 1989 til tímabilsins 2000-2009 varð marktæk aukning í nýgengi þunnra meina hjá báðum kynjum og í meðalþykkum meinum hjá körlum. Á milli tímabilanna 2000-2009 og 2010-2018 varð marktæk minnkun í nýgengi þunnra meina hjá konum. Nýgengi þunnra og meðalþykkra meina hjá körlum hefur einnig farið minnkandi en þykk mein hafa staðið í stað. Miðgildi Breslow‘s þykktar minnkaði úr 2,2 mm á árunum 1980-1989 í 0,9 mm á árunum 2000- 2009 hjá körlum og frá 1,0 í 0,6 mm hjá konum á sama tímabili og hefur haldist stöðugt síðan. Nýgengi SSM vefjagerðar hefur aukist mikið frá 1990 en ekki nýgengi annarra vefjagerða. Mein af SSM vefjagerð voru 76% tilfella á tímabilinu 2010-2018. Algengasta staðsetning æxlanna var búkur hjá körlum (47%) og neðri útlimir kvenna (40%). Nýgengisbreytingar voru mest áberandi á meðal kvenna á höfuðborgarsvæðinu. Húðsjúkdómalæknum fjölgaði mikið upp úr 1990 og árið 1991 hófst árvekniátak um blettaskoðun. Þreföld minnkun hefur orðið í ljósabekkjanotkun fullorðinna og helmings minnkun hjá ungmennum frá árinu 2004. Ályktanir: Aðal breytingin yfir tímabilið 1980-2018 var í nýgengi þunnra sortuæxla. Breytingin var mest áberandi meðal kvenna á höfuðborgarsvæðinu og í meinum af SSM vefjagerð. Aukning varð í nýgengi upp úr 1990 samhliða aukningu í notkun ljósabekkja og aukinna vinsælda sólarlandaferða auk fjölgunar húðsjúkdómalækna og árvekniátaks um blettaskoðun. Nýgengi féll aftur upp úr 2005 samhliða minnkun í ljósabekkjanotkun og aukinnar vitundar almennings um skaðsemi útfljólublárrar geislunar. Tengsl fæðingarþyngdar og 5 mínútna Apgars við þroska barns og félagslega líðan á unglingsárum Elva Kristín Valdimarsdóttir1, Þóra Steingrímsdóttir1,2, Ingibjörg Eva Þórisdóttir3, Þórður Þórkelsson2 1Læknadeild Háskóla Íslands, 2Landspítali, 3Háskólinn í Reykjavík Inngangur: Lág fæðingarþyngd er tengd burðarmálsdauða, vaxtarskerðingu, ungbarna- sjúkdómum, vitsmuna skerðingu og langvinnum sjúk dómum síðar í lífi barna. Rannsóknir hafa sýnt fram á aukna hættu léttbura á skertum þroska, tilfinninga vanda og fleiri vandamálum. Há fæðingarþyngd er tengd við aukna hættu á fylgi- kvillum fæðinga og lágum Apgar. Rannsóknir á of stórum börnum við fæðingu sýna að langtímaáhrif þess eru jákvæð á heilsu, þroska og menntun. Ástand barns við fæðingu er metið með samræmdu kerfi sem kallast Apgar. Rannsóknir hafa sýnt fram á að lágur Apgar við fæðingu hafi tengsl við ýmis vandamál eins og vitsmunaskerðingu, námsörðugleika og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.