Læknaneminn - 01.04.2020, Blaðsíða 8
8
Á
vö
rp
o
g
an
ná
la
r
8
Starfsárið 2019-2020 hefur
verið viðburðaríkt hjá
Alþjóða nefnd. Sumarið
2019 héldu 17 íslenskir
nemar út í skiptinám til
ólíkra áfangastaða. Má þar
nefna Portúgal, Tansaníu,
Perú Kanada, og Jórdaníu.
Alþjóða nefnd tók síðan á móti 23 nemum
í júlí og ágúst. Komu þeir meðal annars
frá Jórdaníu, Rússlandi, Ítalíu og Brasilíu.
Var þeim skipt niður á hinar ýmsu deildir
spítalans og því ekki ólíklegt að íslenskir
læknanemar starfandi á spítalanum í sumar
hafi rekist á einhver þeirra. Sumarið var
svo sannarlega stútfullt af skemmtilegum
viðburðum með skiptinemunum og frábærum
íslenskum tengiliðum. Má þar nefna vel
heppnaðar helgar- og dagsferðir ásamt
frábæru Alþjóðakvöldi.
Meðlimir Alþjóðanefndar hafa verið dug-
legir að sækja alþjóðlegar ráðstefnur á árinu
ásamt öðrum samstarfsfélögum. Sam-
norræna læknanema ráðstefnan FINO var
haldin í Reykjavík í nóvember 2019 og
átti Alþjóðanefnd þrjá fulltrúa. Um var að
ræða vel heppnaða ráðstefnu og á íslenska
skipulagsnefndin mikið hrós skilið. Í mars fór
síðan fram hinn árlegi marsfundur. Þetta ár var
ráðstefnan í Rwanda og sendi Alþjóðanefnd
tvo fulltrúa. Þessar ráðstefnur eru stór og
mikilvægur liður í starfsemi Alþjóðanefndar.
Einnig er ánægjulegt hvað áhugi íslenskra
læknanema á alþjóðlegu samstarfi hefur aukist
upp á síðkastið og hvað mörg samstarfsfélög
ásamt læknanemum utan félaga taka þátt.
Helstu áskoranir starfsársins tengdust
COVID-19 heimsfaraldrinum en við þurftum
meðal annars að fresta hinu árlega bingói
Alþjóða nefndar. Einnig þurftum við að gera
sérstakar ráðstafanir í tengslum við komandi
sumar skipti. Við fengum góðan stuðning
menntadeildar Landspítala í þessum málum.
Þetta starfsár hefur farið í innviðauppbyggingu
með von um að gera störf nefndarinnar
aðgengilegri. Við höfum unnið að nýrri
heima síðu sem við vonum að geti aðstoðað
lækna nema í skiptináms hugleiðingum.
Einnig stofnuðum við Instagram síðu þar
sem birtar verða reynslusögur íslenskra
læknanema. Síðast en ekki síst þá tók nefndin
í notkun nýtt lógó og viljum við þakka Elínu
Eddu kærlega fyrir hjálpina með það.
Að lokum vil ég þakka félögum mínum
í Alþjóðanefnd kærlega fyrir gott og
afkastamikið starfsár. Miklir dugnaðarforkar
öll sem eitt. Spennandi verður að sjá hvað
næsta starfsár mun hafa upp á að bjóða.
Alþjóðanefnd
Guðrún Karlsdóttir
Formaður Alþjóðanefndar 2019-2020
Skólaárið 2019-2020 hefur
að venju verið viðburðaríkt
hjá kennslu- og fræðslu-
málanefnd (KF). Við
höfum áfram setið fundi
kennsluráðs og til við-
bótar fundi í starfshópum
kenn ara sem vinna að
endurskipulagningu náms í læknis fræði.
Endur skipulagningin er mikil vægur liður í
framþróun náms í læknis fræði, ekki síst nú þar
sem aukning varð á fjölda nemenda í lækna-
deild nú í haust þegar 60 nýnemar hófu nám.
KF situr einnig fundi deildarráðs auk deildar-
funda ásamt fulltrúum úr Félagi lækna nema
(FL) en við höfum átt ánægjulegt samstarf
við þau.
Samspil milli árganga er í hávegum haft hjá
KF en stærsta verkefni sem þar má nefna
er mentoraverkefnið. 5. árs nemar gegna
hlutverki mentora og gera sitt besta til að
leiðbeina 1. árs nemum við sín fyrstu skref
innan læknadeildar. Mentoraverkefnið hófst
þegar núverandi 6. árs nemar voru á 1. ári og
því hafi allir árgangar sem sitja í Læknadeild í
dag notið góðs af verkefninu. Fyrir hönd míns
árgangs hefur verið mjög gleðilegt að bera
verkefnið áfram sem við nutum sjálf góðs af
á okkar 1. ári.
KF skipulagði aftur kennslu í líkamsskoðun
þar sem 4. árs nemar kenna 2. árs nemum réttu
handtökin fyrir verklegt stöðvapróf. Einnig
fengu 2. árs nemar kennslu í lífeðlisfræði og
lífefna- og sameindalíffræði frá 5. árs nemum
þar sem reynt er að setja efnið í klínískt
samhengi til að krydda prófalærdóminn.
Kúrsakynningarnar hafa verið á sínum stað
þar sem nemendur fara í árgangana sem koma
á eftir þeim og kynna námskeiðin framundan
og veita góð ráð.
Næstu vikur hefðu átt að vera viðburðaríkar
hjá KF en heimsfaraldur hefur sett strik í
reikninginn. Samkomubann kemur í veg fyrir
sérnámskynninguna og hjartahlustunarvísó í
mars en þeir viðburðir bíða spenntir eftir að
losna úr sóttkvínni og taka á móti læknanemum
þegar tíminn kemur. Holsjárkeppnin hefur
einnig farið fram helgina fyrir árshátíð FL,
áfram er stefnt að því þegar ný dagsetning
verður ljós.
Í lok skólaárs hefur KF haldið kynningu á
BS-tímabilinu fyrir 2. árs nema og á USMLE
prófunum fyrir klíníska nema. Stefnt er að því
að þær kynningar verði haldnar en með öðru
móti en áður.
Það hefur verið sannur heiður að fara með
formennsku þessa frábæra hóps sem skipar
KF í ár og fyrir hönd nefndarinnar vil ég
þakka kærlega fyrir skólaárið sem er að líða!
Kennslu og
fræðslumálanefnd
Lilja Dögg Gísladóttir
Formaður kennslu- og fræðslumálanefndar
2019-2020