Læknaneminn - 01.04.2020, Síða 14
R
itr
ýn
t e
fn
i
14
og á hinum Norðurlöndunum er notast við
Nordic-Baltic perinatal death classification1
en þar til árið 1994 var miðað við 28 vikna
meðgöngulengd og/eða fæðingarþyngd 1000
grömm.2 Vegna framþróunar sem orðið
hefur í fæðingarhjálp og nýburalækningum
eiga sífellt fleiri fyrirburar möguleika á að
lifa við styttri meðgöngulengd og lítur nýja
skilgreiningin til þessarar þróunar. Tíðni
andvana fæðinga á Íslandi var árið 2016
2,7‰,3 en tíðnin hefur lækkað umtalsvert á
síðastliðnum 30 árum.2
Grunur um fósturlát vaknar þegar hjartsláttur
heyrist ekki við hlustun með Doppler og
greiningin er svo staðfest með ómskoðun.
Ómskoðun er framkvæmd af tveimur vönum
ómskoðurum til staðfestingar. Framkvæmd
er nákvæm skoðun á byggingu og útliti
fósturs ásamt því að lega þess er metin og
legvatnsmagnið.
Samkvæmt verklagsreglum LSH eru gerðar
rann sóknir til að reyna að komast að orsök and-
látsins (sjá flæðirit). Blóð hagur er tekinn til að
útiloka afbrigði leika í blóð rauða (hemoglobin)
og athuga hvort um sýkingu sé að ræða. Þvag
er sent í almenna ræktun ásamt stroki fyrir
klamydíu og lekanda úr leggöngum/leghálsi.
Einnig eru gerðar mótefna mælingar fyrir
ákveðnum sýkingavöldum (sjá flæðirit).4 Með
storku prófum er verið að athuga hvort bráð
blóðstorku sótt sé til staðar en við fóstur dauða
er aukin áhætta, sérstaklega ef að fóstrið
hefur verið látið í einhvern tíma.5 Kleihauer
próf athugar hvort rauð blóðkorn frá fóstri
sé að finna í blóðrás móður, sem vísbending
Eftir greiningu á fósturdauða
Að fæðingu lokinni
Fleiri rannsóknir ef eftirfarandi forsendur eru fyrir hendi
Rannsóknir 8-12 vikum eftir fæðingu
Grunnrannsóknir við allar andvana fæðingar
Fá ítarlegar upplýsingar frá/um móður
Ómskoðun
• Nákvæm skoðun á fóstri/fósturgallar
• Legvatnsmagn
• Lega og staða fósturs
Ef grunur er um sýkingu
• Strok frá leggöngum í almenna ræktun
og frá leghálsi í klamydíu
• Þvagræktun
Barn
• Ytri skoðun
• Ljósmyndun
• Yfirborðsstrok
• Húðflipi í litningarannsókn
• Krufning
Skv.
niðurstöðum
krufningar
Skimun fyrir bláæðasegahneigð (þar með talið anticardiolipin)
Frekari rannsóknir/ráðgjöf samkvæmt niðurstöðum krufningar.
Meðgöngu-
eitrun
Saga um
storkutruflanir hjá
móður/fjölskyldu
Vaxtar-
skerðing
fósturs
Flæðistruflanir
eða blóðtappar í
fylgju
Óútskýrður
fósturdauði
Fylgja og naflastrengur
• Almenn skoðun, skrá lýsingu
• Almennar ræktanir (milli belgja), og af barni: kok og
holhönd
• Biti af fylgju og naflastreng í litningarannsókn
• Fylgja og strengur send í rannsókn
Blóðprufur úr
naflastreng
• Blóðflokkun og
Coombs próf
Blóðprufur við greiningu:
• Blóðstatus, APTT, PT, fíbrínógen,
DDimer, CRP
• Kleihauer
Blóðprufur við innlögn
• BAS/BKS (flokkun og
mótefnaskimun)
• Þvagsýra, Kreatínin
• ALAT, LD, Gallsýrur (fastandi)
• TSH, fT4, HbA1c
• Cytomegalovírus, Toxoplasma,
Herpes, Parvoveira, Rauðir hundar
• Syphilis
Stixa þvag
Flæðirit I Grunnrannsóknir framkvæmdar við andvana fæðingar.