Andvari - 01.04.1960, Blaðsíða 81
andvaiu
MENNTAMÁLAIiÁÐ OG MENNINGARSJÓÐUli
79
fjórðung og bjargaði á þcim tíma lífi og
lieilsu þúsunda vanheilla manna sem
þangað sóttu. Ef forgöngumenn málsins
hefðu ekki kunnað að sigla milli skers
og báru væri ekki enn kominn landspítali
í Islandi. Aðrir munu mæla á þann veg
að hér sé beðið um of mikil fjárframlög.
Þetta er ekki rétt. Menntamálaráð hefir
nóg fé til að gefa út til sinna félags-
manna stóra og myndarlega menningar-
sögu. Utgáfan stendur meira að segja í
óborgaðri skuld við þúsundir félags-
manna, sem gengu í upphafi fram til
stuðnings við þjóðarútgáfuna, en hafa
ckki nema að nokkru leyti sætt sig við
þann fátæklega kost, sem þeim var boðinn
oftar heldur en þörf var til. Hér er mælt
með stefnuhvörfum sem mundu orka
nokkru í sjálfmenntunarviðlextni Islcnd-
biga, ef vel verður á haldið.
XIII
Ritstjórn Andvara hefir tekið upp þann
góða sið að minnast einstakra útgáfubóka
með heppilegu auglýsingasniði. Væntan-
lega
mun hið aldurhnigna og virðulega
^marit ekki sinna aðfengnum auglýs-
nigum. Nógu margir eru annars í þeirri
veiðistöð. Hins vegar mundi fara vel á
að gefa vinum og stuðningsmönnum út-
gáfunnar tækifæri til að leggja fram og
fá birta í Andvara óskaseðla, mjög tak-
markaða að lengd, rökstudda gagnrýni og
heilbrigð hvatningarorð um einstök atriði
scm varða bæði bókaútgáfuna og lista-
verkakaupin. Stórum félögum hættir til
að stirðna og jafnvel steinrenna ef ekki
er séð fyrir aðstreymi lífslofts og birtu inn
á heimili samtakanna.
Hér hefir ekki gefizt að sinni tími til að
ræða um listaverkakaup og safnmyndun
menningarsjóðs. Verður aðeins á það
bent að menntamálaráð ber alla ábyrgð
á listaverkakaupum ríkisins og meðferð
þeirra. Er þar mörgu ábótavant. Engin
festa er í safnmynduninni. Enn lætur
menntamálaráð þá óvenju viðgangast að
ríkisstjórnin hafi mörg af dýrmætustu
verkum íslenzkra meistara í veizlusal
þjóðarinnar þar sem þau geta brunnið á
nokkrum mínútum hvenær sem er. Ef
menntamálaráð minnist lagafyrirmæla unx
þetta efni, mun ekki verða um það deilt,
að því ber skylda til að draga öll beztu
listaverk landsins saman í safnhús það
sem ríkið hefir lagt frarn í þessu skyni.
Ef tekið er á þeirri framkvæmd með festu
og verklagni má þegar á þessu vori gera
úr myndaeign ríkisins gott listaverkasafn,
sem getur orðið áhrifamikill aflvaki í
menningu þjóðarinnar. Að öðru leyti
verður ekki rætt meira um listaverka-
kaup ríkisins að sinni. Þessari ritgerð er
ætlað það verkefni eitt að vera lítil byrjun
að brúargerð milli menntamálaráðs og
menningarsjóðs og alls almennings í land-
inu.