Andvari

Árgangur

Andvari - 01.04.1960, Blaðsíða 51

Andvari - 01.04.1960, Blaðsíða 51
andvaiu MAÐURINN í SÖGUTÚUCUN MACCIIIAVELLIS 49 legra staðreynda. En hann auðgar hana um hina náttúruvísindalegu greiningu, sem greiðir sundur cðlilegar orsakir eins og þær verða ákvarðaðar í rúmi og tírna. Um leið afneitar hann algerlega trúnni á yfirskilvitlegan tilgang atburðarásar- innar og lætur hefðgrónar hugmyndir um tilveruna livergi hefta anda sinn. Með þcssari aðferð rakti hann megin- þættina i stjórnmálasögu þjóðar sinnar og samtíðar. Fyrir hans daga höfðu sagn- fræðingar litið á sögu 'Ítalíu sem hnign- unarsögu Rómaveldis, en hann skilur fyrstur manna miðaldirnar sem sérstakt skeið sögunnar, háð sínu eigin innra lög- máli. Elt frá þessu sjónarmiði reynir hann að gera sér ljóst, hvort ráðandi stjórn- málastefnur samtíðarinnar myndi ákveðið kerfi og hvaða lögmálsbundin nauðsyn úafi leitt til slíkrar nýskipunar. Sagn- Eæðingar á undan honum höfðu aldrei gctað öðlazt ljósan skihring á þjóðflutn- mgunum miklu; Macchiavelli aftur á móti skilur að fullu hinar efnahagslegu orsakir þeirra og þýðingu þeirra fyrir nýtt sbeið sögunnar. (Hann reit að vísu enga menningarsögu. Voltaire var sá, sem skildi það fyrstur manna, að menning, atvinnu- þróun og samfélag eru í tilveru sinni óháð Persónulegum örlögum einstaklinga). Hin nýja sagnfræðilega rannsóknar- dðferð Macehiavellis myndi ein nægja til þcss að halda nafni hans á lolti. Miklu þýðingarmeira er þó hitt, hvernig hann lúlkar sögulegar staðreyndir. Ilann gcng- 111 oina túlkunarleið á enda, rétt eins °g stærðfræðingur, sem rekur allar álykt- anir af frumsetningu (axióm). Og jafn- þó að vér verðum að játa, að raun- 1æfing þess lögmáls, sem hann hélt sig 'ala fundið, hlyti að leiða til gereyðingar mannkynsins, þá er hugsanaskerpa hans engu síður aðdáanleg. Og er hægt að 8era oss hið dulda siðgæði ljósara með öðrum hætti en að rekja augljósa and- stæðu þess út í yztu æsar? Hvað finnur Macchiavelli þá í sög- unni? I henni finnur hann, að „í tímanum" — því eina skynjunarformi atburðarásar, sem oss stendur opið — koma aðeins fram vélrænar afleiðingar ákveðins ástands, sem menn og kringumstæður skapa. Hinu yfirskilvitlega sleppir hann með öllu og vísvitandi. Raunveruleikinn er grund- vallaður í sjálfum sér og hvorki háður hugsjón né skynsemi. Sagan hirðir ekki um það, sem ætti að vera, heldur um það, sem er, og jafnvel eingöngu um hina skynjanlegu tilveru. Því verður hver sá, scm fæst við athugun sögulegra stað- reynda, að takmarka sig stranglega við „hinn óvefengjanlega sannleika um hlutina, en skeyta engu því, sem vér ímyndum oss um þá“. Sagnfræðingurinn er þess ekki um kominn að setja fram kenningar um gott og illt. Honum ber aðeins að lýsa stað- reyndum, hvort sem það eru nú viðburð- irnir sjálfir eða innbyrðis afstaða þeirra. I lann getur skilið orsakakeðjuna og rann- sakað, hvernig hún rennur áfram — meira getur hann ekki. Það, sem liggur utan þessa sviðs, er skáldskapur, siða- kröfur, guðfræði, en alls ekki pólitík. Sagnfræðingurinn mun komast að raun um, að veröldin hefir alltaf verið óbreyt- anleg, í henni ráða alltaf hin sömu nátt- úrulögmál — og einmitt þessi sömu liig- mál hrærast í allri sögulegri verðandi. Samsemd sögulegra staðreynda á þó að- eins við um hin virku öfl og lögrnál, sem þær hlíta, en ekki um viðhurðina sjálfa og allra sízt um formið, sem þeir birtast í. Það, sem breytist mcð líðandi stund og birtist í ólíkum myndum á ýmsum stöðum, það eru ekki hin virku öfl, held- ur aðeins skuggar þeirra og litbrigði, sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.