Andvari - 01.04.1960, Blaðsíða 37
andvaui
STURLA FRIÐIUKSSON
35
Línkerfi þurrkuð.
utan sofnhúsið. Þess skal og getið, að
Njálshrenna á að hafa verið á tímabilinu
ttilli 21. ágústs og 5. septembers, en þá
ætti korn einmitt að hafa verið þroskað
°S uppskera og jafnvel þresking hafin.
Þannig stangast fundur þessi hvergi á
yið frásögnina í Njálu. Og af þeim fimm
jurtategundum, sem þar voru, er þriggja
beinlínis getið í sögunni.
Við þessa rannsókn er nú enn einu
við bæta, og það mjög þýðingarmiklum
pætti í þcirri viðleitni að tengja jurtaleif-
arnar frásögunni í Njálu og hinum sögu-
ega atburði, Njálsbrennu. Er það eðlis-
°g efnafræðileg aldursákvörðun á jurtaleif-
unum. En aldur lífrænna efna má ákvarða
uieð því að mæla í þeim eftirstöðvar hins
geislavirka kolefnis —14, sem jurtin
tefur unnið úr loftinu meðan hún óx.
Nokkrir hinna brunnu byggkjarna
voru afhentir efnafræðingi við Saskat-
chewanháskólann í Kanada til ákvörð-
unar. Idefur niðurstaða þeirrar rannsókn-
ar nú sýnt, að byggið hefur vaxið árið
1039, en þó getur skeikað 60 árum til
eða frá. Nú á Njálsbrenna að hafa verið
árið 1011. Verður því naumast komizt
nær með að sanna, að hinar koluðu jurtir
hafi raunverulega vaxið á akri Njáls
bónda á Bergþórshvoli og brunnið í Njáls-
brennu.
Ilef ég nú rætt um hina fyrri rann-
sókn á jurtaleifum frá Bcrgþórshvoli og
skal nú vikið að síðara viðfangsefninu.
Á afmörkuðu svæði nyrzt og austast í
landi Bergþórshvols, á hallalausum bökk-
um milli Affallsins og mýrar nokkurrar,
eru torfgarðar miklir. Kallast það svæði
Línakrar og hefur heitið svo frá ómuna
tíð. Garðar þessir eru nú allsokknir, því
að jarðvegsmyndun er þarna ör. Sést þó
vel til þeirra flestra, að þeir mynda reglu-