Andvari - 01.04.1960, Blaðsíða 39
TRYGGVE ANDERSEN:
HRAKNINGAR BERTELS
I
Það hafði rignt án afláts frá því um morguninn. Þegar stytti upp um
nónbilið, hvarf þokan ekki af fjallinu suður á eynni. Og drungaskýin grúfðu
yfir stóru, ræktuðu mýrinni, sem bændurnir höfðu ræst fram og breytt í akra
°g engi. Umhverfis liana höfðu þeir reist hvítmáluðu íbúðarhúsin sín og rauð-
máluðu úthýsin, og byggðin náði alla lcið út að hröttu, gráu klöppunum, sem
byrgðu útsýnina til hafsins.
En í norðri, bak við klappirnar, létti ofurlítið til, og eftir sólsetur bjarmaði
fyrir hreiðri, gulleitri rönd af himni undir þokuhakkanum.
Ut úr einu húsinu, sem stóð í skjóli hávaxins pílviðarrunna, kom ung
kona með hreingemingasvuntu og uppbrettar ermar. Hún strauk strítt svart
hárið frá enninu, hallaði undir flatt og gáði til veðurs. Hún var lág vexti og
holdug, en kvikleg í hreyfingum og létt á fæti.
Það var erfitt að gizka á það, hvort hann mundi rigna um nóttina eða ekki.
Það gat líka vel skeð, að hann hvessti aftur á norðaustan, en af þeirri átt hafði
verið stonnur fyrr í vikunni. . . . Og skyldi nú Bertel koma af sjónum í kvöld?
Elann var háseti á hafnsögubátnum í Leynivík. Hafnsögumennirnir höfðu
ytt ur vör fimmtudaginn í fyrri viku. í dag var laugardagur, og þetta hafði
verið löng útivist. Þeir voru sjaldan lengur en viku úti.
Elún andvarpaði, gekk út í eldiviðarskýlið eftir grenikvistum og tók að
skreyta dyrahelluna. Hún hafði lokið helgidagshreingerningunni innan húss.
Það var ekki mikið erfiði enn sem komið var og mundi ekki verða það þennan
arsfjorðunginn. Þau höfðu gift sig um páskana.
Það heyrðist slabbandi fótatak á blautum stígnum milli pílviðartrjánna. Ná-
grannahjónin, Hinrik og Þóra, komu með kýrnar sínar úr haganum. Hún leit
Uln öxl í áttina til þeirra, en veitti þeim ekki sérstaka athygli, því að henni
var ekki sérlega hlýtt til þeirra, enda þótt Þóra væri náfrænka hennar. Það
arði síður en svo glatt þau, að Bertel hætti siglingum og kvæntist, þegar hann
eifði jarðarblettinn sinn. Þau höfðu verið með ráðabrugg um það að ná undir