Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Side 65
LÍFSVERK
T-8.2 Lífeyrissjóður verkfræðinga
Ávöxtun
Árið 2010 var að mörgu leyti jákvætt á innlendum og erlendum verðbréfamörkuðum.
Skuldabréfavísitala GAMMA, sem samanstendur af ríkistryggðum skuldabréfum,
hækkaði um 14,16% á árinu. Innlend hlutabréf, skráð í Kauphöll Islands, skiluðu einnig
mjiig gððri ávöxtun. Hlutabréf í Marel hækkuðu um 60% og um 31% í Össuri. Erlend
hlutabréf hækkuðu um 9,6% í erlendri mynt (MSCI world index í USD). Verðlag hækkaði
um 2,6% á árinu 2010. Gengi krónunnar styrktist um 11,2% gagnvart GVT og dró því
verulega úr erlendri ávöxtun.
Hrein nafnávöxtun samtryggingadeildar var 0,2% á árinu
2010 Hrein raunávöxtun samtryggingadeildar var neikvæð
á árinu um 2,4%. Án varúðarniðurfærslu ársins hefði
ávöxtunin orðið jákvæð um 1,8%. Sjóðurinn gjaldfærði
1.262 m.kr. á árinu vegna varúðarniðurfærslu verðbréfa. A
fyrri helmingi ársins nam gjaldfærslan 327 m.kr. en í árslok
var niðurfærslan aukin verulega.
Tæplega 7% af heildareignum sjóðsins eru verðbréf sem
búið er að færa verulega niður og bera ekki fasta vexti. Það
er fremur ólíklegt að þau nái að gefa nokkra ávöxtun á
næstu árum. Þessar eignir eru ýmist í óskráðum hluta-
bréfum eða skuldabréfum. Aðrar eignir þurfa því að bæta
upp skort á ávöxtun til þess að meðalávöxtun sjóðsins í
heild sé viðunandi. Leitast verður við á árinu 2011 að
breyta þessum eignum í vaxtaberandi eignir, s.s. með sölu
krafna ef það þykir hagkvæmt og aðstæður leyfa. Lágir
vextir sjóðfélagalána draga úr ávöxtun sjóðsins í saman-
burði við aðra lífeyrissjóði. Vextir sjóðfélagalána eru 3,7%,
en þar til nýverið voru margir lífeyrissjóðir að bjóða 5%
fasta vexti á sjóðfélagalánum. Sjóðfélagalán voru um 22%
af eignasafni sjóðsins í árslok 2010. Auk þess þarf að taka
tillit til þeirrar staðreyndar að í árslok 2007 var eign
sjóðsins í ríkisskuldabréfum 0,8% af hreinni eign á meðan
þrír stærstu lífeyrissjóðir voru með þetta hlutfall í um
15-30% af hreinni eign sama ár. Leiða má að því líkur að
þessir lífeyrissjóðir hafi keypt löng ríkisskuldabréf á hærri
vöxtum en Lífeyrissjóður verkfræðinga og séu þ.a.l. með
hærri kaupkröfu á ríkisskuldabréfum í sínu safni í dag.
Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðustu fimm ára var
neikvæð um 6,2% og síðustu 20 ára jákvæð um 1,9%.
Innlán skiluðu bestu ávöxtun á síðasta ári eða yfir 10%
nafnávöxtun. Sjóðfélagalán skiluðu 6,2% nafnávöxtun eða
3,4% raunávöxtun. í árslok 2010 var færð varúðarniður-
færsla vegna sjóðfélagalána sem nam 0,5% af útistandandi
lánum, samtals um 32 m.kr. Ávöxtunin tekur mið af því.
2006 2007 2008 2009 2010
Hrem raunávoxlun " 5 éra nwAiftaJ
\__________________________________________________________________
Hrein ávöxtun.
2006 2007
2008
2009 2010
Hrein eign til greiðslu llfeyris.
I milljónum króna
Félagsmil VFl/TFl