Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Page 72
Heimild til úttektar úr séreign
Skipting sjóðfélagalána eftir aldri (fjárhæð i m.kr.).
Aldursbil Fjárhæð Fjöldi
25 og yngri 0 0
26-30 434 57
31-35 1.213 187
36-40 1.460 281
41-45 1.313 314
46-50 1.029 303
51-55 594 209
56-60 283 137
61-65 89 77
66 og eldri 11 10
Samtals: 6.426 1.575
V______________________________________________y
Alþingi samþykkti í desember 2010 tímabundna rýmkun
ákvæða um útgreiðslu frjáls séreignarsparnaðar úr 2,5 í
5 m.kr. I fyrstu var heimilt að taka út 1 m.kr. en sú fjárhæð
hefur verið hækkuð í tveimur skrefum. Frestur til að sækja
um þessa útgreiðslu rann út 1. apríl 2011. Viðbótarfrestur
(fram til 1. júlí 2012) á heimild til úttektar séreignar-
sparnaðar var samþykktur á Alþingi nú á haustmánuðum
og var heimildin jafnframt hækkuð úr 5 m.kr. í 6,25 m.kr.
Stjórn og starfsmenn
Stjórn
Stjórn lífeyrissjóðsins er skipuð fimm aðalmönnum og þremur til vara. Tvö ár í röð eru
tveir aðalmenn í kjöri á aðalfundi og einn varamaður en þriðja hvert ár er einn aðalmaður
í kjöri og einn til vara.
A aðalfundi í maí 2010 var Bjarki A. Brynjarsson kjörinn í aðalstjórn til þriggja ára og
Valur Hreggviðsson í varastjóm til þriggja ára.
A aukaaðalfundi í september 2010 sagði öll stjórnin af sér nema Bjarki A. Brynjarsson sem
kjörinn var í stjórnina í maí. Elísabet Árnadóttir og Valur Hreggviðsson voru kjörin í
aðalstjórn til tveggja ára og Þrándur Ólafsson og Agni Ásgeirsson fram að næsta aðal-
fundi. í varastjóm voru kjörin Jón Lárus Stefánsson til þriggja ára, Ásdís Kristjánsdóttir
til tveggja ára og Halldór Árnason fram að næsta aðalfundi.
Áaðalfundi í maí 2011 voru tveir aðalmenn í kjöri og einn varamaður til þriggja ára. Bjarki
sagði sig úr stjórn vegna nýs starfs.
í stjórn eru: Valur Hreggviðsson formaður, Agni Ásgeirsson varaformaður, Elísabet
Árnadóttir, Jón Lárus Stefánsson og Ágúst Valfells. Varamenn eru Þrándur Ólafsson og
Ásdís Kristjánsdóttir.
Starfsmenn
Alls störfuðu sjö starfsmenn hjá sjóðnum í fullu starfi á árinu 2010. Ingólfur Guðmundsson,
sem ráðinn var framkvæmdastjóri í febrúar, lét af störfum í september 2010 þar sem hann
fékk ekki hæfi frá FME. Guðmundur V. Friðjónsson var starfandi framkvæmdastjóri
stærsta hluta ársins. Auður Finnbogadóttir var ráðin framkvæmdastjóri frá 1. desember
2010. Auður er viðskiptafræðingur frá University of Colorado og MBA frá HR og hefur
lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
Starfsmenn sjóðsins í árslok voru Auður Finnbogadóttir framkvæmdastjóri, Erla Jóna
Sigurðardóttir, iðgjaldaskráning, Guðmundur V. Friðjónsson fjármálastjóri, Jón Tryggvi
Jóhannsson lögfræðingur, Lýður H. Gunnarsson, eignastýring, Óla Helga Sigfinnsdóttir
aðalbókari og Þórhallur S. Barðason, verðbréfaskráning,
70 I Árbók VFÍ/TFl 2011