Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Page 155
Nýsköpunarmiðstöð
íslands
ÁHÆTTUÞÆTTIR Á HEIMSVÍSU
ÚRRÆÐI Á LANDSVÍSU
Karl Friðriksson er hagfræðingur frá University of London og starfar sem framkvæmdastjóri Mannauðs- og markaðs-
stofu Nýsköpunarmiðstöðvar (slands. Hann er stundakennari við Háskólann í Reykjavlk og Keili. Sem ráðgjafi hefur
hann unnið fyrir fjölda (slenskra fyrirtækja og opinbera aðila við stefnumótun, framkvæmd nýsköpunarverkefna og
endurskipulagningu rekstrar. Hann er vottaður verkefnisstjóri og með faglega vottun á sviði vöruþróunar frá The
Product Development & Management Association í Bandaríkjunum. Karl er höfundur bókarinnar Vöruþróun. Frá
hugmynd að árangri, sem gefin var út árið 2004, og meðhöfundur bókanna Framtiðin. Frá óvissu til árangurs. Notkun
sviðmynda við stefnumótun, sem kom út árið 2007, og Stjórnun vöruþróunar. Aðferðir tii árangurs, sem kom út árið 2009.
Hann er sérfræðingur Nýsköpunarmiðstöðvar Islands á sviði samkeppnishæfni og heldur utan um tengsl
miðstöðvarinnar við Alþjóðlega efnahagsráðið (World Economic Forum).
Þorsteinn Ingi Sigfússon er forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Islands. Hann er fæddur í Vestmannaeyjum árið 1954.
Þorsteinn nam eðlisfræði í Kaupmannahöfn og Cambridge og lauk doktorsprófi frá Cambridge háskóla 1983. Hann
hefur verið prófessor við Háskóla (slands frál 989. Sérsvið hans er eðlisfræði þéttefnis, einkum málma og melmis, auk
orku. Þorsteinn hefur verið mikilvirkur í rannsóknum á málmum og melmum, tæknilegri eðlisfræði og orku, einkum
endurnýjanlegri orku og orkuberum. Hann hefur staðið að stofnun fjölmargra sprotafyrirtækja. Þorsteinn hefur hlotið
fjölda viðurkenninga á ferli slnum. Hann hlaut riddarakross hinnar íslensku Fálkaorðu 2004 fyrir rannsóknir og tengsl
atvinnullfs og rannsókna. I kjölfar tilnefningar rússnesku vísindaakademíunnar hlaut Þorsteinn alheimsorkuverðlaunin
Global Energy Prize árið 2007.
Áhætta er fylgifiskur allra góðra verka og því er mikilvægt að greina áhættuþættina í
Umhverfinu svo að við náum bæði að draga úr skaða af þeirra völdum og nýta þá sem
tækifæri við nýsköpun. Nýlega gaf Nýsköpunarmiðstöð íslands út skýrsluna Ahættu-
þxttir á heimsvísu, sem er samantekt úr skýrslu Alþjóðaefnahagsráðsins (e. World
Economic Forum), Global Risks 2011. An initiative of the Risk Response Network. Ætlunin er
í þessari grein er að beina kastljósinu að þeim áhættuþáttum sem um er fjallað í umræddri
skýrslu með áherslu á það hvernig við getum sem best brugðist við ógnunum í
umhverfinu og nýtt þau tækifæri sem umhverfið færir okkur.
Flókin veröld - Ófyrirsjáanleg framtíð
k'Iillifyrirsögnin hér að ofan er úr bók sem Nýsköpunarmiðstöð íslands gaf ut árið 2007
°g nefnist Framtíðin. Frá óvissu til árangurs. Notkun sviðsmynda (e. scenarios) við stefnumótun.
Sviðsmynda-aðferðin er ein aðferð við stefnumótun opinberrar stjórnsýslu eða fyrirtækja-
rekstrar til að höndla óvissu og áhættu í umhverfinu. Fyrirsögnin vísar til áskorana sem
þjóðríki, atvinnugreinar og fyrirtæki standa frammi fyrir í dag. Alþjóðavæðingin hefur
Þjappað heiminum sífellt meira saman og atburðir í fjarlægum heimshluta geta haft skjót
hnattræn áhrif. í umræddri bók er fjallað um þróun á nokkrum sviðum þar sem breytingar
geta ógnað einum á meðan þær eru tækifæri fyrir aðra. Hugum að nokkrum drifkröftum
sem meðal annars er getið um í framangreindri bók og sem geta mótað hina ófyrirsjáanlegu
framtíð.
Kynning og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana
1 5 3