Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Page 187
h*rn þróun á farmstöðvum sagði ni.a. í aðalskipulagsgögnum:
í nðalskipulagi eru settfraw þau markmið að hafnarstarfsemi í Reykjavík verði ejld enn frekar.
Hafnar- og athafnasvæði eru mikilvægur hlekkur í atvinnustarfsemi í borginni og að hún sé
nlþjóðleg borg í góðum tengslum við umheiminn. Það er stefna borganjfirvalda að starfsemi á
þessum svæðum sé gefið vaxtarými og er því í aðalskipulagi afmarkað nægilegt rými fyrir
hafnar- og athafnasvæði og mörkuð er skýr stefna um hlutverkskipti einstakra hafnarsvæða.
Allir almennir vöruflutningar og margskonar stórflutningarfara nú um Sundahöfn oghún er
nú í mun ríkari mæli en áður flutninga- og dreifingamiðstöð alls landsins. Almennir
vöruflutningar hafa tvöfaldast á síðustu 20 árum úr 700 þúsund tonnum í 1450 þúsund tonn
og spáð er að þcir geti tvöfaldist á næstu 30 árum.
Reykjavíkurhöfn er nú ein stærstu gámaflutningahöfn á Norðurlöndum, en árið 2000fóru um
hana 230þúsund gámaeiningar. Hafnarsvæði Reykjavíkur eru mikilvæg atvinnusvæði þar sem
um 3000 manns sækja vinnu. Með 75% íbúa landsins á höfuðborgarsvæðinu og nálægum
byggðum er mikilvægt að helstu vörugeymslur og vörudreifingamiðstöðvar landsins séu sem
næst þessum þungapunkti byggðar í landinu. Þá þurfa athafnasvæði og viðskiptahverfi góð
tengsl við höfn þvífáar þjóðir eru jafn háðar sjóflutningum og íslendingar.
Auk hafnarmannvirkja, farmstöðva og gámavalla fyrir sjóflutninga, sem byggðir hafa
verið í Sundahöfn til að bæta aðstöðu skipafélaga og flutningsaðila, hafa einnig verið
teistar vörugeymslur, dreifingarmiðstöðvar og vöruhótel. Á síðustu árum hafa einnig
risið þar landflutningastöðvar sem byggja á beinni vörudreifingu frá hafnarsvæðinu.
1 dag er eignarland Faxaflóahafna sf. í Sundahöfn um 184 ha. og með þeim breytingum
sem urðu með samþykkt Aðalskipulags á lengingu Skarfabakka að Kleppsbakka og tilheyr-
andi landgerð á árinu 2009 getur heildarland Sundahafnar alls orðið um 198 ha. í framtiðinni.
Á árunum 2006-2008 komu um 62-65% af heildarrekstrartekjum Faxaflóahafna sf. af
Sundahöfn og þeirri starfsemi sem þar fór fram. Tekjur af hafnarmannvirkjum, landi,
lóðum og eignum. Sá samdráttur sem orðið hefur í vöruflutningum til landsins á árunum
2009 og 2010 hefur breytt þessu hlutfalli í 55-57%, en næsta víst er að um leið og hagur
samfélagsins batnar verði þetta hlutfall aftur um 60%. Lóðaleigur Faxaflóahafna af
Sundahöfn eru í dag 300 mkr. Ætla má að tekjur Reykjavíkurborgar og OR af fast-
eignagjöldum, fráveitu- og vatnsgjöldum séu um helmingi hærri tala og af þessu svæði
koma því um 900-1.000 mkr sem beinar tekjur.
Á árunum 2006-2007 var slíkur vöxtur í vöruflutningum til landsins að farið var að
þrengja að starfsemi skipafélaganna og því fylgdu óskir um nýja og endurbætta
hafnaraðstöðu til þess að mæta þessum auknu flutningum.
I Fjárhags- og framkvæmdaáætlun Faxaflóahafna sf.
árið 2008 var í áætlun fyrir árin 2008-2014 reiknað
rneð að þróun hafnaraðstöðu í Sundahöfn yrðu
megin framkvæmdaverk hafnar og þar gert ráð fyrir
um 3,5 milljarða framkvæmdum á tímabilinu.
Flestum þessara framkvæmdaáforma var síðan
frestað. Við gerð fjárhagsáætlunar 2011 koma nú
sum þessara verkefna aftur fram í fimm ára áætlun,
en nú er miðað við að þessi þróunaráætlun standi
lengur og framkvæmdir dreifist á lengra tímabil.
Áætlun áranna 2011-2016 miðar við um 2,5 milljarða
framkvæmdir á tímabilinu í Sundahöfn. Meginþungi
framkvæmda er uppbygging hafnarvirkja en undir
þeim málaflokki eru framkvæmdir við byggingu
hafnarbakka, þróun baksvæða hafnarbakka og
dýpkanir.
Kynning og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana
1 8 5