Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Page 205
Hluti af samkomulagi ÍAV við HLA og Ramböll var að þessi fyrirtæki áttu að nýta
'slenska hönnuði sem samstarfsaðila og gerði HLA samstarfssamning við arkitekta-
stofuna Batteríið og Ramböll samdi við verkfræðistofuna Mannvit um samvinnu.
Til að ná fram hámarksframlegð sammæltust Austurhöfn-TR, Portus og ÍAV um að ráða
eina verkfræðistofu til að hafa með höndum allt framkvæmda- og hönnunareftirlit
(teikningar og efnisrýni) og gegna hlutverki byggingarfulltrúa á verkstað. Verkfræði-
stofan Efla var fengin í það verkefni og koma að verkinu um mitt ár 2007 og fólst vinna
hennar í að stjórna öllu verkeftirliti en Verkfræðistofan Verkís hafði með höndum allt
eftirlit á raflagna-, lagna- og loftræstiþáttum verksins. Með samningi um sameiginlegt
eftirlit var reynt að tryggja að hagsmunir allra aðila kæmu fram, þ.e. bæði rekstrar- og
byggingarlegir, samhliða átti einnig að tryggja að hagsmundir Austurhafnar-TR væru
hafðir að leiðarljósi. Þetta fyrirkomulag eftirlits er að mörgu leyti nýlunda og krefst þess
að fagrýnar stígi út úr hefðbundnu mynstri eftirlitshlutverksins og horfi á heildar-
^tyndina. En nærri má geta að það reyndist oft erfitt og þurfti oft að minna aðila á að
þeirra var að gæta einstakra hagsmuna allra, en ekki einstaks aðila. Gera má ráð fyrir að
allir hagsmunaaðilar hafi á einhverju stigi málsins talið að þeirra hagsmunir hafi orðið
undir. Hlutverk fagrýnanna var því ekki auðvelt og má segja að reynsla þessa verkefnis
sýni að mikilvægt sé að skilgreina nákvæmlega hlutverk rýnanna og tryggja að öllum
•'ýnum, líka þeim sem komu að smæstu málum, sé gerð grein fyrir hlutverki sínu.
Tæknikerfin (TK)
Verkefni greinarhöfundar var að rýna verkfræðihönnun Ramböll á sviði raflagna, lagna
°g loftræstingar. Síðar fólst vinnan í að undirbúa framkvæmdina og stýra á framkvæmda-
tímanum því sem kallað var BS hópur (Building Services), en með réttu hefði kannski átt
að kalla hópinn íslensku nafni t.d. TK hóp (Tæknikerfi). Til að réttlæta fyrri nafnaheiti var
enska samskiptatungumál verkefnisins, en íslenskan tók við sem samskiptatungumál
eftir því sem á verkefnið leið og erlendum starfsmönnum fækkaði.
I þessari grein er eingöngu fjallað um hönnun og framkvæmdir í Hörpu tengdar tækni-
kerfum (TK) en þau eru skilgreind sem:
Loftræsikerfi: Lagnastokkar og samstæður.
Lagnakerfi: Neysluvatnslagnir, frárennsli, hitakerfi,
kælikerfi og vatnsúðakerfi.
Raflagnir: Almennar raflagnir, heimtaugar, rafmagns-
töflur, strengir, strengstigar, ljós, rofar og tenglar.
Öryggiskerfi: Brunaviðvörunarkerfi, neyðarupp-
kallskerfi, reykútsogskerfi, neyðarlýsingarkerfi og
Tetra-kerfi.
Sérkerfi: Myndavélakerfi, aðgangs- og innbrotavið-
vörunarkerfi, tölvulagnir, lyftur, rúllustigar og rafstöð.
Ráðstefnu- og sýningarbúnaður: Sviðslyftur, hljóð-
blöndunarlyftur, ómskjöldur, hljóðgardínur,
hljóðkerfi og sýningarljósakerfi.
1 TK hópnum var Jónas Halldórsson verkfræðingur en hann kom að verkefninu síðla árs
2005 og vann aðallega við verkefnastýringu lagna og loftræstingu. Verkfræðingarnir
Asdís Guðmundsdóttir og Yngvi Guðmundsson unnu að undirbúningi verksins frá
haustinu 2007 fram í ársbyrjun 2009. Yngvi Guðmundsson sá um samræmingu milli
lagnakerfa og byggingarinnar ásamt því að undirbúa gerð verklags- og samskiptareglna.
Ásdís vann að undirbúningi útboða á ráðstefnu- og sýningarkerfum. Gunnar Hrafn
Jónsson tæknifræðingur kom að verkinu haustið 2008 en hann vann að verkefnastýringu
raflagna, öryggiskerfa og sérkerfa.
Kynning og tæknigreinar fyrirtækja og stofnana
2 0 3