Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Page 214
Haukur Þór Bragason - Deildarstjóri á stjórnstöð Símans
1 mínu starfi felst daglegur rekstur stjórnstöðvar og stjórnkerfa,
vinnsla rekstrar- og fjárfestingaáætlana, samantekt á
rekstrarfrávikum, upplýsingagjöf og skýrslugerð. Skipulag og
forgangsröðun verkefna, ásamt stefnumótun og mótun
framtíðarsýnar. Auk þessa má nefna innleiðingu og viðhalds
rekstrarferla og samskiptum við innri og ytri aðila.
Ég hef unnið fyrir Símann með hléum frá 19 ára aldri og
undanfarin ár hef ég unnið að innleiðingu á nýrri stjórnstöð
Símans, sem hefur verið mjög spennandi og umfangsmikið
verkefni. Það hefur snert á flestum þeim þáttum sem fylgja stærri
verkefnum, svo sem stefnumótun, innleiðingu nýrra kerfa,
verkferla, húsnæðis og starfsfólks, svo nokkrir séu nefndir.
Hjá Símanum starfar virkilega skemmtilegt og skapandi fólk, hér ríkir einstaklega
þægilegt og afslappað andrúmsloft, þar sem hvatt er til skapandi hugsunar og
skoðanaskipta þar sem allt starfsfólk getur haft áhrif.
v_________________________________________________________________________________/
, —-----------------------------------------------------------------------------------
Arnar Már Árnason
Ég vinn á Farsímakerfum og deildin sér um rekstur á miðlægum
búnaði í farsímakerfum Símans (GSM, 3G, GPRS), ásamt hinum
tæknilega hluta tenginga Símans við önnur innlend og erlend
farsímafyrirtæki (reiki). Mitt sérsvið er rekstur á kjarnaeiningum
fyrir 2G/3G gagnaflutning í farsíma sem kallast SGSN (Serving
GPRS Support Node) og GGSN (Gateway GPRS Support Node).
Samhliða því vinn ég einnig við rekstur á frelsiskerfi Símans.
Aður en ég kom til starfa hjá Símanum starfaði ég við radíódreifikerfi
annarra farsímafyrirtækja. En þegar mér bauðst þetta spennnandi
starf í kjarnakerfum greip ég tækifærið enda er Síminn öflugt og
leiðandi fyrirtæki á þessum markaði. Svo skemmir ekki fyrir að
vera með gott Símablóð í æðum, en ég er Símamaður af 3. kynslóð.
Þegar ég rifja upp verkefni sem ég hef unnið að hjá Símanum kemur fyrst upp í hugann
innleiðing og uppbyggign á 3G kerfisins. Það var mjög spennandi og krefjandi verkefni
þar sem samhentur hópur kom upp nýju kerfi frá a-ö á skömmum tíma.
Síminn er skemmtilegur vinnustaður með mikla reynslubolta innanborðs. Sveigjanlegt
starfsumhverfi er stór plús við starfið og hér er alltaf eitthvað nýtt í pípunum, nokkuð
sem er nauðsynlegt til að halda tæknibomsu eins og mér gangandi.
212i Arbók VFl/TFl 2011