Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Page 230
Vöruþróun hjá Marel á íslandi
Hjá Marel á fslandi starfa tæplega 100 manns að vöruþróun, en samtals starfa um 400
manns að vöruþróun á vegum fyrirtækisins víðs vegar um heim. Á íslandi fer fram þróun
og hönnun vélbúnaðar (vélhluta, tækja og kerfa úr ryðfríu stáli og plastefnum)/
rafeindabúnaðar (tölvubúnaðar, stýrieininga, skynjara), tækjahugbúnaðar eða
ívafshugbúnaðar („embedded software") sem stýrir einstökum tækjum í rauntíma og
kerfishugbúnaðar sem tengir saman fjölda tækja í heildstæð kerfi, samræmir stillingar
tækjanna, safnar reglubundið gögnum frá tækjunum og býður upp á ýmiss konar
úrvinnslu og greiningu gagna úr matvælavinnslunni.
Innan Marel samstæðunnar fer þróun rafeindatækni og tölvubúnaðar, ásamt
tækjahugbúnaðinum sem keyrir á einstökum tækjum, fyrst og fremst fram á íslandi-
Styrkur og sérstaða þeirrar tækniþekkingar sem þróuð hefur verið á þessu sviði hérlendis
hefur orðið til þess að ákveðið hefur verið að þessi búnaður verði notaður í öllum tækjum
Marel samstæðunnar, þar sem því verður komið við. Með þessu er skotið enn traustari
stoðum undir framleiðslu rafeindabúnaðar og tækjahugbúnaðar á íslandi, en þróun þessa
búnaðar er að mestu í höndum rafmagns- og tölvuverkfræðinga, tæknifræðinga og
annarra sérfræðinga á sviði rafeindatækni.
****«« »**W WMIW »| <
KXILINX^
XC4020XLA"
PQ208AKP0021
A2048603A
09C
Verkfræðingar og aðrir sérfræðingar hjá Marel hanna og þróa ýmiss konar rafeinda- og tölvubúnað.
Fyrstu tæki sem Marel þróaði voru rafeindavogir, en núna þróar fyrirtækið og framleiðir
fjölbreytt úrval rafeindatækja, s.s. stýrieiningar fyrir hreyfibúnað í matvælavinnslu-
tækjum, skynjara, skjástöðvar, stýritölvur, hraðvirkar myndavélar til myndgreiningar í
framleiðsluferli og sérhæfða röntgenmyndnema til gæðaskoðunar í matvælum. Við
þróun þessa búnaðar þarf að hanna arkitektúr eða högun tækjanna, velja viðeigandi íhluti
s.s. örgjörva, minniseiningar og samskiptarásir og ljúka verkinu með samsetningu og
prófunum frumgerða. Auk hefðbundinna sérhæfðra rása, notar Marel forritanlegar FPGA
228 i Arbók VFl/TFl 2011