Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Page 251
ÁHRIF GUFU FRÁ VIRKJUNUM
VlÐ SUÐURLANDSVEG Á
UMFERÐARÖRYGGI
Veðurstofa
íslands ►
Dr. Haraldur Sigþórsson lauk prófi í byggingarverkfræði frá Háskóla Islands 1985, Dipl.lng.-prófi frá Háskólanum (
Karlsruhe 1989 og doktorsprófi frá sama skóla 1993. Hann starfaði hjá umferðardeild Borgarverkfræðings 1993-1996,
Land Transport Safety Authority á Nýja Sjálandi 1996-1998, Línuhönnun 1998-2009 og starfar nú sem lektorvið
Háskólann I Reykjavík og stýrir fyrirtækinu VHS ehf. Haraldur hefur stýrt fjöldamörgum rannsóknar- og
hönnunarverkefnum á sviði samgangna og umferðarmála, bæði hérlendis og erlendis.
Einar Sveinbjörnsson starfar sem ráðgjafarveðurfræðingur. Hann lauk meistaraprófi frá Háskólanum i Osló 1991. Einar
starfaði hjá Veðurstofu Islandsfrá 1991-1999 og aftur 2004-2006, en i umhverfisráðuneytinu 1999-2003 og aftur
2006-2007. Einar rekur Veðurvaktina ehf., sem sinnir ráðgjöf.rannsóknum.úrvinnslu o.fl.
Árni Sigurðsson lauk B.Sc. prófi í jarðeðlisfræði frá Háskóla Islands 1990 og cand scient prófi i veðurfræði frá
Háskólanum í Kaupmannahöfn 1998.Hann hefurstarfað sem veðurfræðingur á Veðurstofu Islands síðan 1998 og
einkum sinnt þar verkefnum i veðurspáþjónustu, auk margvíslegra verkefna tengdum mælingum, úrvinnslu og
rannsóknum. Árni hefur annast eftirlit með veðurstöðvum og fylgst með gæðum veðurgagna, séð um mælingar á
þykkt ósonlagsins yfir Islandi og úrvinnslu þeirra mælinga sem Veðurstofan hefur annast á bakgrunnsgildum
mengunarefna í lofti og úrkomu.
Abstract
The Hellisheiði geothermal power plant started running in the year 2006. Since then no traffic accidents, where slipperiness
has been considered to be a major contributing factor, have been registered at the Hveradalir hillside. Nevertheless, the risk
of such traffic accidents and possible links to the steam from the plant has caused some concern.This research started
autumn 2009.The emphasis was on defining weather conditions where it was likely that the steam would add to the road
slipperiness.The measurements that have been carried out until now do not indicate that the steam from the geothermal
plant is an important factor causing slipperiness on the southern state highway 1 through the Hveradalir hillside. Weather
measurements were carried out, data was analysed and the main result is that three kinds of conditions could possibly
increase slipperiness on the road due to steam.These conditions are not frequent.
Samantekt
Jarðvarmavirkjunin á Hellisheiði hóf framleiðslu árið 2006. Engin umferðarslys, þar sem hálka hefur verið talinn helsti
orsakaþáttur, hafa verið skráð í Hveradalabrekkunni síðan þá. Samt sem áður hafa skapast nokkrar umræður (fjölmiðlum
um orsakatengsl hálku og gufu.Þessi rannsókn hófst haustið 2009.Áhersla var á að skilgreina þau veðurskilyrði.sem væru
likleg til að auka likur á hálkumyndun vegna gufunnar. Hingað til hefur ekki verið hægt að greina út frá mælingum aukna
hættu á hálkumyndun vegna gufunnar í brekkunni. Ot frá greiningu mælinga á veðuraðstæðum var þó hægt að ákveða
þrenns konar veðurskilyrði þar sem forsendur hálkumyndunar væru fyrir hendi. Þessi skilyrði eru ekki algeng og einungis
eitt tilvik staðfest þar sem Isingu má rekja til gufunnar frá orkuverinu.
Ritrýndar v i s i n d a g r e i n a r
2 4 9