Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2011, Page 269
reynslu hjá viðkomandi vatnsveitu og höfðu tekið þátt í uppsetningu innra eftirlitsins.
Helstu upplýsingar um þátttakendur er að finna í töflu 1. Þessar sextán vatnsveitur þjóna
um 65% landsmanna.
Tafla 1. Upplýsingar um þátttakendur í rannsókninni
Stærð vatnsveitu Fjöldi íbúa Meðaltal 12.900 Miðgildi 3.000 Bil 270-120.000
Eftirlitsstaðir Fjöldi 9 6 1-24
Hvað lengi innra eftirlit Ár 6 7 0-12
Hvað lengi að innleiða Mánuði 11 9 2-24
Starfsreynsla viðmælenda í vatnsveitu Ár 16 17 2-29
Við rannsóknina voru notaðar bæði eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir.
Eigindlegar aðferðir byggja á viðtölum sem hafa það að markmiði að skilja aðstæður frá
sjónarhóli viðmælanda sem hafa reynslu af rekstri innra eftirlits. Viðtölin voru hljóðrituð,
færð inn á tölvu og greind samkvæmt aðferðafræði eigindlegra rannsókna þar sem atriði
eru kóðuð. í byrjun viðtalanna var viðmælendum kynnt markmið rannsóknarinnar, eins
og lýst er í inngangskaflanum, og hafði spyrjandi þau atriði til hliðsjónar á meðan á
viðtalinu stóð. Megindlegur hluti rannsóknarinnar var framkvæmdur í beinu framhaldi
af viðtölunum þar sem lagður var spurningalisti með sjötíu og níu spurningum um upp-
setningu og framkvæmd. Tvær þátttökuathuganir voru framkvæmdar, þar sem farið var
í eftirlitsferð með starfsmönnum veitna á mikilvæga eftirlitsstaði og tvö viðtöl voru tekin
við heilbrigðisfulltrúa, annan í þéttbýli og hinn í dreifbýli, til að fá sjónarmið eftirlitsaðila.
Viðtölin voru öll tekin árið 2009 og var nafnleynd viðhöfð.
Helstu niðurstöður
Helstu niðurstöður frá eigindlegu viðtölunum eru kynntar hér. Niðurstöðunum er skipt í
ávinning af innra eftirliti; vanhöld og fyrirstöður; og hvað talið er mikilvægt til að ná
árangri í að koma upp innra eftirliti og halda því virku. Niðurstöður megindlegu hluta
rannsóknanna og tengingu við eigindlegu niðurstöðurnar, ásamt mati á hvernig veiturnar
standa sig í að reka innra eftirlit, sem og fylgni á milli árangurs og ýmissa þátta, má finna
í Gunnarsdóttir et al. (2011).
Ávinningur af innra eftirliti
Mynd 1 sýnir það sem viðmælendur
töldu helsta ávinning af innra eftirliti.
Einn helsti ávinningur, og það sem
flestir tilgreina, er breytt viðhorf sem
komið hafi í kjölfar þess að vatnið var
skilgreint sem matvæli í lögum og
uppsetningu innra eftirlits. Þetta
breytta viðhorf nær oftast bæði til
starfsmanna og stjórna vatnsveitunnar
og þannig verði heilnæmi vatnsins
hluti af öllu ákvarðanaferlinu, alveg
frá hönnun veitunnar og þar til það er
afhent notendum við inntak í hús.
Starfsmenn eru jákvæðari eftir að hafa
komið upp innra eftirliti og nefndu
sumir að þeir starfsmenn sem beri
ábyrgð á gæðum vatnsins hefðu nú
minni áhyggjur þar sem þeir hefðu
Breytt viöhorf starfsmanna - vatn er matvæli
Markvissari vinnubrögö og rekjanleiki
Heilnæmt vatn og öruggari vatnsafhending
Betri stjórnun
Fjárhagslegur ávinningur
Betri þjónusta og viöbrögö viö kvörtunum
Bætir samkeppnisstööu sveitarfélaga
Læra aö þekkja vatnsveitukerfiö
Starfsfólk öruggari um vatniö og því minni
áhyggjur
Bætir imynd vatnsveitunnar
Hlutfall vatnsveitna
20% 40% 60% 80%
81%
i
cn )
■ 44%
■■ 31 ■■ 31 'o 'o
Mynd 1. Ávinningur af innra eftirliti hjá vatnsveitum.|
Ritrýndar vísindagreinar
2 6 7