Morgunblaðið - 23.05.1987, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MAI 1987
Suðrænt götulíf
og glatt geð guma
SÓLIN hellti geislum sínum yfir
landsmenn í gær og var bjart
veður um allt land. Fyrir norðan
og austan hefur sólin reyndar
verið óspör á blíðu sína undan-
farna daga og þar hefur víða
verið svokallað „Mallorcaveður"
að sögn fréttaritara Morgun-
blaðsins. A Akureyri var 23 stiga
hiti klukkan 15.00 i gærdag og
svipað fyrir austan. Heldur kald-
ara var suð-vestanlands en í
Reykjavík mældist 12 stiga hiti
klukkan 15.00.
Fréttaritari Morgunblaðsins á
Eskifirði, Ingólfur Friðgeirsson,
sagði að einmuna veðurblíða hefði
verið þar eystra undanfarna daga,
um 20 stiga hiti, og bestu dagarnir
í gær og á fimmtudag. „Það er
engu líkara en maður sé kominn
til sólarlanda, enda er hér suðrænt
götulíf og létt yfir fólki,“ sagði In-
gólfur. Sigurður P. Bjömsson á
Morgunblaðið/Bjami
Sólin skein jafnt á menn og mál-
leysingja og ferfættir vinir voru
ekki síður kátir en mannfólkið.
Húsavík tók í sama streng og tjáði
okkur, eftir að hafa litið á mælinn
hjá sér, að 19 stiga hiti væri í for-
sælu. Þetta var síðdegis í gær og
menn geta þá getið sér til um hi-
tann á Húsavík undir húsveggjum
á heitasta tíma dagsins. „Fólk er
hér léttklætt og léttlynt," sagði Sig-
urður og bætti því við að hann vissi
um aðkomufólk, sem hefði ætlað
að fara suður á miðvikudag, en
ekki tímt að fara úr veðurblíðunni
nyrðra.
Þó var bjart yfir höfuðborginni
þegár Morgunblaðsmenn fóru í
vettvangskönnun um gamla mið-
bæinn laust eftir hádegi í gær. Það
er eins og tilveran breyti um svip
þegar sólin skín og miðbærinn fyl-
list af fólki. Síðdegis blés svo
hafgolan þoku inn yfir höfuðborg-
ina, en það breytti engu um þá
bjargföstu sannfæringu borgarbúa
að sumarið væri komið.
VEÐUR
IDAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
I/EÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gœr: Yfir landinu er 1018 millibara hæðar-
hryggur sem þokast austur. Smá lægð er að myndast á vestanverðu
Grænlandshafi sem mun hreyfast í norðausturátt.
SPÁ: Sunnan- og suðvestanátt á landinu, gola eða kaldi (3-5 vind-
stig). Sunnan lands og vestan verða skúriren að mestu úrkomulaust
í öðrum landshlutum. Hiti á bilinu 5 til 7 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
LAUGARDAGUR: Suölæg átt og víða rigning þegar líður á daginn.
Hiti á bilinu 7 til 11 stig.
SUNNUDAGUR: Vindátt snýst smám saman til suðvesturs og létt-
ir þá til um norðaustanvert landiö. Skúraleiðingar verða sunnan
lands og vestan. Veður fer dálítið kólnandi.
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—(- Skafrenningur
p7 Þrumuveður
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r f Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
f * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri hlti 6 veöur súld
Reykjavík 7 skýjað
Bergen 11 léttskýjað
Heleinki 9 rigning
Jan Mayen 1 aiskýjað
Kaupmannah. 10 skúr
Narssarssuaq 2 slydda
Nuuk 1 snjókoma
Osló 8 skúr
Stokkhólmur 12 skýjað
Þórshöfn B skúr
Algarve 20 skýjað
Amsterdam 8 rigning
Aþena 20 léttskýjað
Barcelona 16 skýjað
Berlín 11 skúr
Chicago 20 skúr
Feneyjar 16 skýjað
Frankfurt 10 skúr
Hamborg 10 skýjað
Las Palmas 22 léttskýjað
London 12 skúr
Los Angeles 18 þokumóða
Lúxemborg Madrfd 19 vantar léttskýjað
Malaga 25 léttskýjað
Mallorca 18 aiskýjað
Miami 24 skúr
Montreal 13 léttskýjað
NewYork 9 hálfskýjað
París 8 rigning
Róm 18 léttskýjað
Vín 11 úrkomaígr.
Washington 13 alskýjað
Winnipeg 7 heiðskírt
Morgunblaðið/Bjami
Krakkarnir á barnaheimilinu Grænatúni í Kópavogi brugðu sér í
bæjarferð í góða veðrinu. Hér hvíla þau lúin bein i göngugötunni í
Austurstræti.
Morgunblaðið/KGA
Það var þéttskipaður bekkurinn á sundstöðum borgarinnar.
„Smakkaðu á mínum". Rjómaís er ómissandi þegar sól skin í heiði.
Það lifnar óneitanlega yfir útimörkuðunum í veðurblíðunni.