Morgunblaðið - 23.05.1987, Qupperneq 33
33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1987
Öldungadeild Banda- .
ríkjaþings:
Banna aðstoð
við ríki í suður-
hluta Afríku
Washington, Höfðaborg, Reuter.
ÖLDUNGADEILD Bandaríkja-
þings samþykkti í gær með 77
atkvæðum gegn 15 að banna að-
stoð við ríki í suðurhluta Afríku,
ef þau stöðva ekki árásir skæru-
liða yfir landamæri þeirra að
Suður-Afríku. Pik Botha, utanrík-
isráðherra Suður-Afríku, kvaðst í
gær fagna ákvörðun þingsins.
Bannið nær til þeirra ríkja, sem
fordæma ekki svokölluð „hálsfesta-
morð“ á svertingjum. Hér er átt við
það þegar múgurinn tekur réttlætið
í sínar hendur, setur hjólbarða fylltan
bensíni um háls fómarlambsins og
kveikir í.
Samkvæmt löggjöfínni er bannað
að nota bandaríska sjóði til að styðja
ríki þau, sem lýsa velþóknun sinni
yfir starfsemi samtaka, sem með
oddi og egg berjast gegn aðskilnaðar-
stefnu stjórnar hvíta minnihlutans í
Suður-Afríku. Þetta bann á þó eftir
að fara nokkra hringi um völundar-
hús bandarísks stjómkerfis áður en
það verður að lögum.
Jack Kemp gagnrýnir Bandaríkjastjórn:
Reuter
Mannskæð átök íNýju Dehlí
Tveir menn biðu bana og 70 særðust í miklum
óeirðum, sem brutust út í gær milli hindúa og
múslima í Nýju Dehlí. Sett var útgöngubann og
herinn kallaður til aðstoðar 20.000 manna lög-
regluliði, sem var í varðstöðu um borgina alla.
Nær eitthundrað menn hafa beðið bana í átökum
hindúa og múslima á Indlandi í vikunni. Myndin
var tekin í miðborg Nýju Dehlí í gær.
Varar við „Munchenar-sátt-
sáttmála um kjamorkuvopn“
Washington, Reuter.
JACK Kemp, sem sækist eftir
útnefningu Repúblikanaflokks-
ins til forsetakosninganna í
Bandaríkjunum á næsta ári, hef-
ur í auknum mæli gagnrýnt
stefnu stjórnar Ronalds Reagan
forseta í utanríkismálum. í gær
líkti hann fyrirhuguðum afvopn-
unarsamningi risaveldanna við
„MUnchenar-sáttmála um kjarn-
orkuvopn".
„Við megum alls ekki undirrita
Miinchenar-sáttmála um kjam-
Landsstjórmn tilkynnir
um bráðabir gðastj ór n
Suva, Fýi, Reuter.
LANDSSTJÓRINN á Fiji og
höfðingjar ættbálka á eynni til-
kynntu í dag um bráðabirgða-
stjórn, þar sem frumbbyggjar
eru í meirihluta. Nú er vika síðan
valdarán var framið á Fiji og
fyrstu meirihlutasljórn Indveija
var steypt af stóli.
Hermaðurinn Sitiveni Rabuka,
sem leiddi valdaránið, situr í stjórn-
inni og svo er einnig um Timoci
Bavadra, forsætisráðherra stjórnar,
sem steypt var.
Hermenn standa enn vörð á göt-
um Suva, höfuðborgar Fiji, eftir
kynþáttaóeirðir, sem brutust út fyr-
ir þremur dögum. íbúar sögðu að
Indveijar hefðu nú vogað sér á
götur út eftir að hafa haldið sig
innan dyra á fimmtudag. Flestar
verslanir voru lokaðar og sömu sögu
var að segja um einn banka. Lág-
marksfjöidi starfsmanna hélt
opinberum stofnunum gangandi.
Landsstjóri Fiji, Ratu Sir Penaia
Ganilau, kvaðst mundu sjá um
stjóm landsins frá degi til dags með
aðstoð 19 bráðabirgðaráðherra þar
til kosningar verða haldnar að nýju
eftir stjórnarskrárbreytingar.
í stjórninni eru 15 melanesar,
þrír eyjaskeggjar af indverskum
uppruna og einn Fiji-búi, sem fædd-
ist á Bretlandseyjum.
Bandaríkin:
Kínverskur innflytjandi
heimsmeistari í póker
Las Vegas, Reuter.
KÍNVERSKUR innflyljandi sigr-
aði á fimmtudagskvöld heims-
meistarakeppni i póker, sem
haldin var í Las Vegas í Banda-
ríkjunum, og vann hann rúmlega
eina milljón dollara, sem safnast
höfðu í pottinn.
Johnny Chan, sem fluttist ásamt
fjölskyldu sinni frá Kína til Banda-
ríkjanna fyrir tuttugu árum, sigraði
í fjögurra daga maraþon-pókerspili.
Þraukaði hann lengur en 151 annar
keppandi. Spilaður var póker með
sjö spilum, sem nefnist „Texas
snerra" og fór keppnin fram í
Spilavítinu skeifan.
Chan spilaði við Frank Hender-
son í úrslitum og var potturinn
rúmelga hálf milljón dollara í
síðasta spili. Chan var með dökk
sólgleraugu og hvíta derhúfu og
datt hvorki af honum, né draup
þegar hann lagði tvær níur á borð-
ið. Henderson átti ekki nema tvo
fjarka þannig að hann varð að láta
sér annað sætið lynda og 250 þús-
und dollara í sárabætur.
„Ég veit ekki hvort ég er besti
póker-spilari í heimi, en ég gæti
verið sá heppnasti," sagði Chan
þegar sigurinn var í höfn og glotti
við tönn.
orkuvopn, sem stefnt gæti framtíð
NATO í hættu," sagði Kemp. Átti
hann þar við sáttmálann, sem gerð-
ur var við Þjóðveija undir stjórn
Adolfs Hitler fyrir heimsstyijöldina
síðari. Miinchenar-sáttmálinn hefur
verið notað sem annað orð yfir veik-
leika og friðþægingu.
Þingmaðurinn frá New York
nefndi Reagan ekki á nafn, en hann
gerði grín að draumi forsetans um
heim án kjarnorkuvopna.
„Of margir í þessari ríkisstjórn
hafa alið á fölskum vonum um að
koma kjarnorkuvopnum fyrir katt-
amef,“ sagði Kemp á fundi í
Washington. „Saman höfum við
gert of mikið úr ágæti takmörkunar
vígbúnaðar til þess að lægja öldur
óánægju heima fyrir. Og nú taka
Sovétmenn okkur á orðinu," bætti
hann við.
Samkvæmt skoðanakönnunum
er Kemp langt á eftir bæði George
Bush varaforseta og Robert Dole,
forystumanni þingflokks repúblik-
ana í öldungadeildinni, í baráttunni
um útnefningu repúblikana til for-
setakosninganna. Hann hefur reynt
að afla sér stuðnings hjá hægri
væng flokksins með því að gagn-
rýna utanríkisstefnu Reagans.
Hann forðast aftur á móti að nefna
forsetann á nafn, þar sem hann er
óhemju vinsæll meðal repúblikana,
og beinir spjótum sínum þess í stað
að „utanríkisráðuneytinu" eða
„stjóminni".
Reuter
Johnny Chan baðar sig í dollaraseðlum eftir hafa knúið fram sigur
á heimsmeistaramóti i póker, sem haldið var í Las Vegas.
Gæða-
stimpill
og gottverð
Ath.
„^narr
annritósípönwnum
hötumviðopio
álaugardögurn
■aiiiii
Enn laus sætí:
11.6.-2.7.-9.7.-16.7.-23.7.-3.9,-
10.9.-24.9.-8.10.
Lausum sætum fækkar með
hveijum degi.
Verðfrákr.
20.550.-
12 vikur (meðalverð miðað við
hjón með 2 börn undir 12 ára).
Munið Fnklúbbinn á Costa del
Sol undírstjórn Hemma Gunn.
Aöeins fyrir Útsýnarfarþega.
Heimsreisur:
Kína
Californía
Hawaii
Heimsborgir
og farseðiar um
víða veröld.
Munið raðgreiðsiur
VISA
Viðskiptavinir eigá þess kost
nú sem áður að greiða eftir-
stöðvar ferðakostnaðar með
VISA raðgreiðslum.
Einnig bendum við á af-
borgunarleiðina „Sparið upp
í farið" með VISA
Við lánum þér jafnmikið í
jafnlangan tíma og þú spar-
aðir fyrir brottför.
Hæsti kaupmáttur
á ferðalögum og
Fríklúbbshlunnindi
IB _letri
kostur
Sími 26611